Vilja sjá verðmat Landsvirkjunar 10. nóvember 2006 01:45 BJörn ingi Hrafnsson formaður borgaráðs segir að engin ákvörðun hafi verið tekin um það hvort verðmatið verði lagt fyrir borgarráð.
Fyrirspurnir um sölu Reykjavíkurborgar á hlut sínum í Landsvirkjun, sem fulltrúar Samfylkingarinnar í borgarráði lögðu fram á fundi í síðustu viku, voru ekki útræddar á fundi ráðsins í gær. Fyrirspurnirnar snerust um að borgarstjóri Reykjavíkur, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, hefði selt hlutinn fyrir "smánarverð" og rökstuddu þeir þá skoðun með því að vísa til verðmats á Landsvirkjun upp á 91,2 milljarða sem gert var í lok árs 2005. Reykjavíkurborg seldi hlutinn miðað við að verðgildi Landsvirkjunar væri 60,5 milljarðar. Í Fréttablaðinu á laugardaginn sagðist borgarstjóri ekki kannast við 91,2 milljarða verðmatið, meðal annars vegna þess að það hefði aldrei verið lagt fyrir borgarráð. Á fundinum í gær lögðu fulltrúar Samfylkingarinnar fram ósk um að 60,5 milljarða verðmatið, sem lá til grundvallar samningnum um sölu hlutarins í Landsvirkjun, verði lagt fyrir borgarráð. Björn Ingi Hrafnsson, formaður borgarráðs, segir að "engin ákvörðun hafi verið tekin" um hvort verðmatið verði lagt fyrir ráðið en segist "reikna með" að fulltrúar Samfylkingarinnar fái svör við þeim spurningum sem þeir hafa lagt fram. Á laugardaginn verður aukafundur í borgarráði þar sem meðal annars verður fjallað um fyrirspurnir fulltrúa Samfylkingarinnar.
Innlent Mest lesið „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Erlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Lögregla klippti á plöturnar Innlent Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Erlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent Fleiri fréttir Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Sjá meira