Skrifar fyrir virt vefrit 1. desember 2006 14:45 Skrifaði umfjöllun um tónleika Sufjan Stevens í Fríkirkjunni á tónlistarvefritið pitchforkmedia.com.
Marga netverja rak í rogastans þegar þeir sáu nafn Atla Bollasonar skrifað undir umfjöllun um tónleika Sufjan Stevens í Fríkirkjunni á heimasíðunni Pitchforkmedia.com, sem er einhver sú virtasta í bransanum. „Ég og Leó Stefánsson félagi minn rákumst á útsendara Pitchfork á Airwaves og það fór bara nokkuð vel á með okkur. Við bentum honum á áhugaverð bönd og Leó endaði á því að taka myndir fyrir hátíðina sem birtust á Pitchfork. Síðan hefur ritstjórnin verið í sambandi þegar eitthvað spennandi gerist hér á landi og við höfum reynt að liðsinna þeim eftir fremsta megni,“ segir Atli. „Jákvæð umfjöllun á Pitchfork þýðir að bandið þitt er orðið að stórstjörnu í indí-heiminum. Bönd eins og Arcade Fire og Interpol væru varla neitt án síðunnar,“ segir Atli um vinsældir og vægi síðunnar en tekur það líka fram að mörgum þyki Pitchfork vera hroka- og fordómafullur miðill. Atli, sem viðurkennir að vera mikill aðdáandi síðunnar, segist ekki viss um hvort hann muni skrifa meira, þótt hann sé vissulega til. „Það er dálítið spennandi að hundrað þúsund manns hér og þar um heiminn muni taka mark á því sem mér fannst, einhver völd sem fylgja því.“ Atli segir að próförk Pitchfork hafi þó lítillega poppað upp á enskukunnáttu sína í greininni, „Ég veit ekki einu sinni hvað „austere“ þýðir.“
Menning Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Lífið Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir Lífið Fleiri fréttir Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira