Syngur poppdúetta 4. desember 2006 16:00 Tenórinn Jóhann Friðgeir hefur gefið út plötuna Jóhann Friðgeir og vinir. MYND/GVA
Tenórinn Jóhann Friðgeir hefur sent frá sér á vegum Frost dúettaplötuna Jóhann Friðgeir og vinir þar sem hann syngur m.a. með Stefáni Hilmarssyni, Björgvini Halldórssyni, KK og Diddú. „Þetta er gömul hugmynd sem ég hafði í kollinum. Í fyrra söng ég með Leone Tinganelli og það vakti mikla athygli og lukku. Ég ætlaði mér þá að gera léttklassískan disk í þessum anda og útgefandi greip þetta á lofti og vildi nefna hann Jóhann Friðgeir og vinir eins og Pavarotti and Friends-plöturnar,“ segir Jóhann. „Mér fannst ég í fyrstu vera að herma eftir því en það stefnir allt í sömu áttina í þessum heimi.“ Að sögn Jóhanns var frábært að syngja dúettana. „Þetta er allt öðruvísi en ég hef verið að gera. Þetta var dálítið skringilegt fyrir mig í fyrstu,“ segir hann og tekur fram að upptökustjórinn Þórir Úlfarsson hafi verið galdramaðurinn á bak við útkomuna. Hann segist vel geta hugsað sér að endurtaka leikinn síðar. „Það er engin spurning að ég mun gera það. Það voru margir fleiri sem ég myndi vilja hafa á þessum disk, því ég á svo mikið af vinum í þessum bransa. Það er gaman að syngja þetta því þetta er svo allt öðruvísi en maður er að gera dagsdaglega. Þetta eru flott lög með fallegum melódíum.“ Jóhann Friðgeir hefur sungið einsöng við ýmis tækifæri hér heima, til dæmis með Karlakórnum Fóstbræðrum, Karlakór Reykjavíkur, Skagfirsku söngsveitinni, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Tríói Reykjavíkur. Hann hefur haldið nokkra einsöngstónleika hér á landi þar á meðal í Íslensku óperunni. Hann mun á næstunni halda áfram að ferðast vítt og breitt um heiminn til að syngja í hinum ýmsu óperuhúsum, m.a. í Wales, Dublin, Bandaríkjunum og Þýskalandi. Auk þess verður hann „einn af dívunum“ á Frostrósartónleikunum þann 5. desember þar sem hann mun syngja að minnsta kosti tvö lög.
Mest lesið Fékk hvorki að setja eigið nafn né dulnefni á þættina sína Lífið Fyrrverandi ráðherra Dana: „Þið voruð aldrei nýlenda“ Menning Klæddi sig upp sem hjákona eiginmannsins Tíska og hönnun Svona er kynlífsþjónusta á Íslandi Lífið Stjörnulífið: „Ef fólk hættir að gagnrýna mig svelt ég“ Lífið Floppin í haust og sjónvarpslaus sjónvarpsverðlaun Menning Dagur Sig genginn í það heilaga Lífið Leikstýrir kærastanum í stærsta harmleik sögunnar Lífið Hefur farið í gegnum sambandsslit, gjaldþrot og fjárkúgunarmál frammi fyrir þjóðinni Lífið Ljúffengir hafraklattar með kaffinu Lífið Fleiri fréttir Ekkert rapplag á topp 40 í fyrsta sinn í 35 ár „Lélegur í að fela hvernig mér líður og bera harm minn í hljóði“ Breytti um nafn eftir djúpa ástarsorg Spila jólalög allan sólarhringinn fram að jólum Gervigreindarsvikarar reyna að hagnast á íslenskum stjörnum Katrín Odds og Þorgerður ástfangnar á frumsýningu Englar Birnis frumsýndir og heimildarmynd á leiðinni Sleppti tökunum á ástarsorgarplötu aldarinnar Lofar hlustendum jákvæðri og skemmtilegri stemmingu Þetta eru bestu lög 21. aldarinnar „Þetta er ömurleg fjárhagsleg ákvörðun“ Borgarstjóri og bombur í brjálaðri GusGus-gleði Sama hvað öllum finnst, nema mömmu og pabba Íslenskar stjörnur heiðra Bítlana Frumsýning á Vísi: Iceguys trylla þjóðina enn og aftur í nýju myndbandi Baunar á kókaða söngkonu fyrir baktal Sjá meira