Draga á úr framkvæmdum 2. október 2006 16:00 Árni Mathiesen fjármálaráðherra MYND/NFS
Gert er ráð fyrir áframhaldandi stöðugleika í efnahagsmálum í nýju fjárlagafrumvarpi sem kynnt var í dag. Draga á úr framkvæmdum á vegum ríkisins fyrir utan framkvæmdir í samgöngumálum og atvinnuleysi kemur til með að aukast. Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, kynnti fjárlagafrumvarp ársins 2007 á Selfossi nú fyrir hádegið. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að tekjuafgangur ríkissjóðs verði 15,5 milljarðar króna en afgangurinn verður 23 milljörðum krónum meiri en reiknað var með í langtímaáætlun. Gert er ráð fyrir að áfram verði stöðugleiki í efnahagsmálum. Dregið verður úr framkvæmdum á vegum ríkisins fyrir utan framkvæmdir í samgöngumálum. Jafnframt er gert ráð fyrir að hagvöxtur lækki og verði 1% á næsta ári en verðlag hækki um 4,5%. Atvinnuleysi eykst á næsta ári og verður 2,1%. Frumvarpið felur í sér umtalsverðar hækkanir á barnabótum sem eru í samræmi við samkomulag ríkisins og Alþýðusambands Íslands. Skattar halda áfram að lækka en í útgjöldum ríkisins er lögð áhersla á almannatryggingar, velferðar-, heilbrigðis- og samgöngumál. Í frumvarpinu er ekki gert ráð fyrir úrræðum ríkisstjórnarinnar vegna lækkunar matvælaverðs né auknu fjármagni í fangelsismál. Fjárlögin gera ráð fyrir 1% samdrætti í heilbrigðismálum. Nokkra athygli hefur vakið að Árni hafi ákveðið að kynna frumvarpið á Selfossi í sínu kjördæmi. Árni ákvað nú í haust að færa sig úr Suðvesturkjördæmi yfir í Suðurkjördæmi. Árni segir sjálfur ekkert athugunarvert við staðsetningu kynningarinnar, hann hafi kynnt mörg frumvarpa sinna víða um landið.
Fréttir Innlent Mest lesið „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Sá sem féll í Ölfusá er látinn Innlent Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Innlent Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Innlent Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Innlent Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Innlent Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Erlent Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Innlent Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Innlent Sólin gæti litið við í borginni um helgina Veður Fleiri fréttir Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Sjá meira