Fær ekki að koma til Íslands í áratug 4. október 2006 19:01 Héraðsdómur Reykjavíkur. MYND/Valgarður Gíslason
Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti í dag úrskurð dómsmálaráðuneytis frá í apríl í fyrra um að Víetnömskum manni, sem nú er staddur í heimalandi sínu, verði vísað úr landi og bannað koma aftur til Íslands næstu 10 árin. Í gögnum málsins kemur fram að maðurinn kom til Íslands með móður sinni í júlí 2001, en hann var þá 16 ára gamall. Hann fékk útgefið dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldutengsla sem gilti til 1. desember sama ár. Dvalarleyfi stefnanda var þá endurnýjað og gilti til 20. mars 2003, en 9. apríl sama ár fékk hann útgefið nýtt dvalarleyfi sem gilti til 20. mars 2004. Móðir stefnanda fékk búsetuleyfi hér á landi í júlí 2004. Faðir stefnanda og bróðir búa einnig hér á landi en þeir komu til Íslands árið 2002. Hefur hvorugur þeirra fengið búsetuleyfi hér. Í apríl 2002 var maðurinn dæmdur í tveggja ára, skilorðsbundið fangelsi vegna brota gegn almennum hegningarlögum. Þá var kveðinn upp dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur rúmu ári síðar þar sem maðurinn var dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi fyrir stórfellda líkamsárás og kynferðisbrot gegn barni. Rúmu hálfu ári síðar var hann auk þess dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir líkamsárás. Loks var kveðinn upp dómur í Héraðsdómi Vesturlands í júní 2004 þar sem stefnandi var dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir minniháttar líkamsárás sem átti sér stað þegar stefnandi var í refsivist á Kvíabryggju. Vegna þessara dóma var stefnandi í fangelsi í rúmt ár en vegna ungs aldurs fékk hann reynslulausn í tvö ár eftir helming afplánunar í ágúst 2004.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Sjá meira