Sækja mannskap á nýju þyrluna frá Noregi 7. október 2006 18:51
Landhelgisgæslan fékk í dag nýja þyrlu, sem er sömu gerðar og TF-LÍF og er hún leigð frá Noregi. Tveir norskir flugmenn komu með þyrlunni og koma þeir til með að starfa hér á landi næsta árið þar sem Gæsluna skortir þjálfaðan mannskap. Þyrlan er leigð hjá fyrirtækinu Airlift í Noregi. Hún flaug frá Noregi í morgun með viðkomu í Færeyjum á leið til Íslands. Hún er Puma þyrla og er svipuð TF-LÍF. Þetta er fyrsta þyrlan af þremur sem bætast í hóp þeirra tveggja sem Gæslan á fyrir. Landhelgisgæslan hefur unnið að því að þjálfa fólk til starfa á nýju þyrlunum en Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir að fyrsta árið verði tveir norskir þyrluflugmenn hér við störf. Koma þyrlunnar er liður í eflingu Landhelgisgæslunnar vegna brotthvarfs þyrlusveitar Varnarliðsins. Georg telur að Landhelgisgæslan sé með nýjum þyrlum mjög vel í stakk búin að takast á við verkefnin sem þyrlusveit Varnarliðsins aðstoðaði áður við. Landhelgisgæslunni var í gær veitt flugrekstrarleyfi frá Flugmálastjórn Íslands sem að gerir Gæslunni kleift að fá vélarnar leigðar. Stefnt er að því að kaupa nýjar þyrlur, sem verður þó líklega ekki fyrr en í fyrsta lagi árið 2010.
Fréttir Innlent Mest lesið Sigurjón lenti fyrir bíl: „Þetta er alveg lygilegt“ Innlent Þessi troða upp á innsetningarathöfn Trump Erlent Hyggjast leggja 100 prósent skatt á eignakaup útlendinga Erlent Óvenjuleg skjálftahrina í Bárðarbungu Innlent Krafa um að tré verði felld í Öskjuhlíð eigi ekki að koma á óvart Innlent Ragnheiður Torfadóttir er látin Innlent Kassi með utankjörfundaratkvæðum barst ellefu dögum of seint Innlent Fjórir handteknir í tengslum við þjófnað af ferðamönnum Innlent Bloomberg segir viðræður hafa átt sér stað um sölu TikTok til Musk Erlent Ekki sést síðan í aðdraganda gossins í Holuhrauni 2014 Innlent Fleiri fréttir Öflug hrina í Bárðarbungu og Íslandsbankasala í augsýn Hafi ekki fengið nauðsynlega hjálp áður en hann varð dóttur sinni að bana Ekki sést síðan í aðdraganda gossins í Holuhrauni 2014 Ár liðið frá því hraun rann inn í Grindavík Segir nýjan orkuráðherra ætla að hægja á ferðinni Krafa um að tré verði felld í Öskjuhlíð eigi ekki að koma á óvart Ragnheiður Torfadóttir er látin Óvenjuleg skjálftahrina í Bárðarbungu Kassi með utankjörfundaratkvæðum barst ellefu dögum of seint Fjórir handteknir í tengslum við þjófnað af ferðamönnum Fjölgun ferðamanna hefur áhrif á útköll Landhelgisgæslunnar Sigurjón lenti fyrir bíl: „Þetta er alveg lygilegt“ Viðvarandi verkefni að finna jafnvægi milli íhalds og frjálslyndis Hafa hirt tugi hræja í höfuðborginni og fleiri kettir sendir í sýnatöku Alþingi kemur að öllum líkindum saman eftir hálfan mánuð Sakborningur í Sólheimajökulsmáli ákærður fyrir tilraun til manndráps Týnd atkvæði séu ekki einsdæmi Hræin sem hrannast upp, eldar magnast og bassaleit Heimilisköttum haldið inni og hundaeigendur á varðbergi Með eitt og hálft kíló falið innvortis Landsfundi ekki frestað Hlaup hafið úr Grímsvötnum Stærsta kristal-amfetamínmál sögunnar komið til saksóknara Jón Magnús og Guðríður Lára til aðstoðar Ölmu Þáttur hinna mannanna rannsakaður í þaula Deilan í algjörum hnút Rúntað um borgina í leit að holum Telur ljóst að fundinum skuli ekki frestað „Ég man ekki eftir álíka faraldri“ Fjöldi tilkynninga vegna fuglaflensu Sjá meira