Viðskipti innlent

Ticket styrkir sig í viðskiptaferðalögum

Pálmi Haraldsson, annar af eigendum Fons, sem á fjórðungshlut í Ticket.
Pálmi Haraldsson, annar af eigendum Fons, sem á fjórðungshlut í Ticket.

Ticket hefur keypt sænsku viðskiptaferðaskrifstofuna MZ Travel. Kaupverð er háð rekstrarárangri MZ á þessu ári og getur hæst farið í 750 milljónir króna.

Velta MZ nam um átta milljörðum króna í fyrra og skilaði félagið þá um fjörutíu milljóna króna hagnaði.

Ticket, sem er skráð í Kauphöllina í Stokkhólmi, er að fjórðungshluta í eigu Fons, félags Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×