Viðskipti innlent

Eigendur Olíufélagsins og Bílanausts sameina reksturinn

Ein af bensínstöðvum Olíufélagsins.
Ein af bensínstöðvum Olíufélagsins. Mynd/Heiða

Eigendur Olíufélagsins hf. og Bílanaust hf. hafa ákveðið að sameina rekstur félaganna snemma á næsta ári. Bæði félögin eru í fullri eigu BNT hf.

Í tilkynningu frá félögunum til Kauphallar Íslands segir að markmiðið með samrunanum sé að leysa aukinn slagkraft úr læðingi með markvissri samvinnu og fjölbreyttara vöruúrvali.

Nú starfa um 700 manns samtals hjá þessum fyrirtækjum

Samrunanefnd verður skipuð af stjórnum beggja félaga








Fleiri fréttir

Sjá meira


×