Spila á By:Larm 6. febrúar 2007 07:00 lay low Söngkonan Lay Low spilar á By:Larm-hátíðinni í Noregi.
Söngkonan Lay Low og hljómsveitirnar Reykjavík! og Ultra Mega Technobandið Stefán koma fram á skandinavísku tónlistarráðstefnunni By:Larm sem verður haldin í Noregi 8. til 10. febrúar. Spila þau undir merkjum Iceland Airwaves-hátíðarinnar. Ráðstefnan dregur árlega til sín hundruð starfsmanna tónlistarbransans á Norðurlöndunum, Bretlandi og annars staðar í Evrópu, auk venjulegra tónlistaráhugamanna. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan árið 1998 og fagnar því tíu ára afmæli í ár. Aðstandendur By:Larm hafa síðustu ár verið fastagestir á Airwaves. Þetta er engu að síður í fyrsta sinn sem hátíðirnar tvær vinna saman með þessum hætti. Aðdragandinn er samstarf Airwaves og norska menntamálaráðuneytisins. Ráðuneytið styrkti tónleika fjögurra norskra hljómsveita á Airwaves í fyrra (120 Days, Skatebård, The Whitest Boy Alive og Datarock) í þeim tilgangi að efla framgang norskrar tónlistar á alþjóðavettvangi. Í kjölfarið fékkst ráðuneytið til að styðja við bakið á sérstakri Airwaves-dagskrá á By:Larm.
Mest lesið Er Rothschild-ættin að sölsa undir sig allan heiminn? Lífið Stjörnulífið: Hilmir Snær og Vala Kristín kósí í Laugum Lífið Minnast Davíðs: Hugrakkur, hnyttinn og stór í sniðum Lífið Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Laufey og Collab í eina sæng Lífið Tækifærin þurrkuðust upp eftir stuðning við Palestínu Bíó og sjónvarp Ástrós Trausta og Adam kveðja Fossvoginn Lífið Ástin blómstraði á sýningu Tolla Menning Guðni og gellurnar mættu í kokteilboð Lífið Fór alla leið inn í hausinn á konu sem treystir ekki eigin skynjun Lífið Fleiri fréttir Lagið minnti á sig í sambandsslitunum Einn vinsælasti íslenski tónlistarmaðurinn óþekktur hérlendis Laufey segir skilið við Wasserman í skugga Epstein-skandals Sturluð vika hjá Kristmundi Axel Úr barnaskemmtunum á klúbbinn Í fyrsta sinn á föstu á Valentínusardaginn 52 ára Sjóðandi hiti hjá stjörnum rappsins Segir bless og sjáumst aldrei við Wasserman Inspector Spacetime í Apple auglýsingu: „Mjög súrrealískt“ „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Sjá meira