Feitur hljómur Kaiser Chiefs 16. febrúar 2007 09:30 Kóngar Britpoppsins snúa aftur Kaiser Chiefs frá Leeds hefur verið hyllt sem ein besta poppsveit Breta undanfarin ár. Hún gefur í næstu viku út aðra plötu sína.
Leeds-sveitin Kaiser Chiefs hefur átt mikilli velgengni að fagna frá því að fyrsta platan hennar Employment kom út fyrir tveimur árum. 26. febrúar kemur önnur platan hennar, Yours Truly, Angry Mob, í verslanir. Trausti Júlíusson hlustaði á gripinn. „Hvað sem þið gerið, ekki breytast í Coldplay.“ Þessa setningu heyrði Nick Hodgson, trommuleikari og forsprakki bresku hljómsveitarinnar Kaiser Chiefs, áhorfanda hrópa í lok tónleika í London á síðasta ári. Og hann getur ekki gleymt henni. Eftir velgengni fyrstu Kaiser Chiefs plötunnar Employment, sem kom út fyrir tveimur árum og er búin að seljast í um þremur milljónum eintaka, þá var sveitin komin í þá aðstöðu að geta gert það sem henni sýndist. Og meðlimum Kaiser Chiefs er mikið í mun að bregðast ekki aðdáendum sínum. Hljómsveitin er búin að spila mikið á tónleikum síðustu tvö ár. Hún hitaði meðal annars upp fyrir U2 á Evróputónleikaferð og síðasta sumar þræddi hún nokkrar helstu tónlistarhátíðirnar. Hún var eitt stærsta nafnið á Iceland Airwaves 2006 þar sem hún spilaði við mikinn fögnuð í Hafnarhúsinu á laugardagskvöldinu. Og svo var hún að klára nýja plötu. Yours Truly, Angry Mob kemur út eftir rúma viku og hún líkist Coldplay ekki neitt.Stærri hljómurÞað er oft talað um að það sé erfitt að fylgja eftir frumsmíð sem slær í gegn. Álagið er mikið. „Við höfum heyrt margar af þessum plötum númer tvö undanfarið þar sem hljómsveitin hefur svo miklar áhyggjur að lögin sjálf eru rusl, en menn eru búnir að kalla til alls konar auka hljóðfæraleikara og gospelsöngvara,“ segir Ricky Wilson, söngvari Kaiser Chiefs, þegar hann er spurður út í þetta. „Við gerðum það ekki. Þetta erum ennþá bara við að spila, þó að hljómurinn sé miklu stærri.“Employment þykir besta britpop-plata síðustu ára. Á henni heyrði maður áhrif frá bresku poppi allt frá The Kinks og The Who til pönksveitarinnar The Jam og Blur og Supergrass. Styrkur plötunnar lá meðal annars í því að hún var full af melódískum og grípandi lögum. Hvergi dauður punktur: Everyday I Love You Less and Less, I Predict A Riot, Na Na Na Na Naa, Modern Way, Team Mate ... Nýja platan Yours Truly, Angry Mob er sömuleiðis hlaðin smellum. Maður er aðeins lengur að falla fyrir henni. Hún er ekki alveg eins gáskafull og eins og Ricky segir er hljómurinn feitari, en hún er stútfull af grípandi popplögum: Ruby, The Angry Mob, Thank You Very Much, I Can Do It Without You, My Kind Of Guy ...Trommarinn stjórnar ferðinniYours Truly, Angry Mob var tekin upp í Hook End Manor hljóðverinu í Oxfordshire undir stjórn Stephen Street, en hann er þekktastur fyrir að hafa tekið upp Blur og The Smiths. Þó að lögin séu skrifuð á alla meðlimina fimm þá er trommarinn Nick Hodgson hiklaust tónlistarlegur leiðtogi Kaiser Chiefs. Hann stjórnar ferðinni og hefur líka samið alla stærstu smellina. Hann mætir með þá á æfingu og svo klárar sveitin þá í sameiningu.Kaiser Chiefs var stofnuð vorið 2003, en meðlimirnir voru þá búnir að vera saman í annarri hljómsveit allt frá árinu 1997. Hún hét fyrst Runston Parva sem síðar var stytt í Parva. Parva spilaði bílskúrsrokk og fékk litla athygli. Það er öruggt að streðið með Parva hefur styrkt meðlimi Kaiser Chiefs og gert þá tilbúnari til að takast á við velgengnina sem beið þeirra þegar sveitin var búin að endurfæðast með nýtt nafn og breytta tónlistarstefnu. Þess má að lokum geta að Skjár 1 sýnir tónleika með Kaiser Chiefs annað kvöld klukkan 21.25.
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Rassaumhirða karla í sókn Lífið „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úrslit HM Tíska og hönnun Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar Lífið Fleiri fréttir Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Madonna með heitustu dansmynd ársins Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum „Pólitíkusar sem tala á þennan veg: Fokk jú“ „Þú getur ekki ráðist að mér þegar ég er að borða með ömmu minni“ Peabo Bryson er látinn Datt af sviðinu og beint í skurð „Stundum verður maður að segja fokk it“ „Við skoðuðum þennan markað og hann var allur í lausu lofti“ Íslenskur tónlistararfur loksins aðgengilegur öllum Mugison þakkar innilega fyrir sig Segir gagnrýnina til marks um normalíseringu barnagirndar Snúa aftur á byrjunarreit: „Það þekkir enginn rassinn á mér eins vel og Addi“ Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Blóð, sviti og tár skemmtilegra en að prumpa út lögum Bó átti að syngja á nýju lagi Stefáns: „Örlögin gripu í taumana“ Stendur með Bríeti í deilunni við Pálma Þá var kátt í höllinni Shakira sýknuð Þrjú hundruð kórbörn frumflytja lag Herra Hnetusmjör fagnar fyrir fullri Laugardalshöll „Þetta var erfiðasta ár lífs míns“ Nennti ekki að meika það Stjörnufans hjá Birni á Edition Fjarsamband alltaf erfitt Eurovision fer fram í vikunni en hlustunartölur hríðfalla Tónleikum Yasiin Bey frestað með dags fyrirvara fram á haust Ástarsorgin átakanleg en gjöful Sjá meira