Fagra kvenveröld 8. mars 2007 05:00 Það er allt í steik. Þetta vitum við öll, og stundum eftir að maður hefur hlustað á fréttirnar finnst manni óhugsandi að hér verði mannapar á kreiki eftir tvö hundruð ár. Að minnsta kosti ekki mannapar í jakkafötum. Græðgi, gróðurhúsa-áhrif og almenn vitleysa verður örugglega búin að útrýma tegundinni, eða breyta í stökkbreytt grey sem vafra um leifar stórborga veifandi frumstæðum kylfum. Því held ég að eina von mannkynsins sé að láta konurnar taka við stjórnartaumunum á öllum mögulegum sviðum. Skítt með jafnrétti - konur eiga betra skilið eftir árþúsundalanga undirokun. Með óskoruðu einræði tekst konum örugglega að stýra heiminum inn í fagra nýja kvenveröld þar sem hunang drýpur af hverju strái. Því auðvitað eru það vitlausir karlpungar sem bera ábyrgð á stöðunni í dag. Hvítir hvapholda karlpungar sem öllu ráða. Djöflast um á reyk-spúandi míní-álverum, með hausinn fullan af vitleysu, gónandi á eftir sérhverjum kvenmannsrassi, knúnir áfram af engu öðru en þörfinni fyrir að moka undir rassinn á sjálfum sér. Við karlar erum í raun óþarfir. Það má auðveldlega fækka okkur rækilega en soga úr velvöldum sýnishornum vökvann sem viðheldur mannkyninu. Hægt væri að geyma til undaneldis úrvalsflokk karla í gámum á hálendinu. Þar fengju þeir að gera það sem þeim þykir best: glápa á erótískt klám og fylgjast gólandi með fótboltaleikjum. Til hátíðarbrigða mætti henda kjötsneiðum í gámana og draga fram grillið. Í fjarveru karlpunga mun heimurinn blómstra. Hin kvenlegu gildi fá að ráða. Ofbeldi heyrir strax sögunni til. Græðgi og almenn vitleysa gufa upp. Þingkonur og forstýrur verða normið og fara með friði á hendur kynsystrum sínum. Samræðustjórnmál taka völdin. Gróðurhúsaáhrifin hverfa, kennarar verða á geðveikum launum og helsta vígi íslensks ójöfnuðar hrynur því auðvitað verður nú eingöngu talað við konur í Silfri Öglu. Byltingin er þegar hafin. Fleiri konur en karlar útskrifast úr háskólunum. Konur sýna daglega að þær eru ekki jafningjar karla heldur í flestum tilfellum miklu klárari. Karlpungum er linnulaust komið í skilning um að það sem þeir standa fyrir er rangt, hugsunarháttur þeirra er viðbjóðslegt ofbeldi og þeir ættu að skammast sín. En betur má ef duga skal. Ég mun fyrstur gefa mig fram þegar hreinsunin hefst. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Dr. Gunni Mest lesið Prince Polo, var táknmynd spillingar kommúnismans í Evrópu Júlíus Valsson Skoðun Við getum ekki slökkt elda að eilífu Silja Sóley Birgisdóttir Skoðun Söguskýringar Samfylkingarinnar Stefanía K. Ásbjörnsdóttir Skoðun Kveikt í trúverðugleika Samfylkingarinnar – slökkviliðið er sem betur fer á leiðinni Andri Steinn Hilmarsson Skoðun Hin eilífa kosningabarátta innan KSÍ Sævar Þór Sveinsson Skoðun Sannleikur um slökkvistöð í Kópavogi Jónas Már Torfason Skoðun Þetta er ekki ástand – þetta er þjóðarglæpur Vilhelm Jónsson Skoðun Hvað þarf marga borgarfulltrúa til að skipta um ljósaperu? Páll Edwald Skoðun Þjóðin hræðist ekki leigupennana Sverrir Páll Einarsson Skoðun Halldór 28.02.2026 Halldór
Kveikt í trúverðugleika Samfylkingarinnar – slökkviliðið er sem betur fer á leiðinni Andri Steinn Hilmarsson Skoðun
Kveikt í trúverðugleika Samfylkingarinnar – slökkviliðið er sem betur fer á leiðinni Andri Steinn Hilmarsson Skoðun