Abbababb! - þrjár stjörnur 17. mars 2007 12:00 Slær forvera sínum ekki við enda vandasamt verk að gera nær alveg eins plötu á betri hátt. Fjörið heldur sér þó frá upphafi til enda og er helsti kostur plötunnar.
Plata Dr. Gunna frá 1997, Abbababb!, er líklegast best heppnaða barnaplata frá því að Eniga Meniga kom út. Hafnarfjarðarleikhúsið sýnir nú leikrit byggt á þessu snilldarverki Dr. Gunna og nú er komin út plata með lögum leikverksins sem inniheldur heil sextán lög. Fjörið á völdin á plötunni og tónninn er strax gefinn í fyrsta laginu, stuðlaginu Abbababb! þar sem áhrifin frá Devo leyna sér ekki. Á eftir blasa síðan við lög sem einnig voru á upprunalegu plötunni en nokkur ný fá einnig að fljóta með. Skemmtilegust þeirra eru án efa „60‘s garage“ lagið Hr. Rokk og Fýlustrákarnir og hið eiturhressa Hr. Diskó sem er hálfgerð ábreiða af Daddy Cool með Boney M (sem Dr. Gunni tilnefndi á bloggsíðu sinni um daginn sem eitt af bestu lögum sögunnar). Af upprunalegu plötunni sakna ég þó helst Upp í sveit og Ó, kisa mín. Aðalsmerki plötunnar eru glettnir textar, eins og Dr. Gunna er einum lagið. Einfalt rím og barnslega einfalda textar, oft yndislega súra, er auðvelt að gleypa og ekki þarf margar spilanir þangað til maður byrjar sjálfur að raula með. Það sem skilur þessa plötu helst frá forvera sínum eru flytjendurnir sem voru töluvert betri á fyrri plötunni. Sigurjón Kjartansson setur þó skemmtilegan svip á plötuna, Álfrún Örnólfsdóttir skilar sínu vel og Atli Þór Albertsson kemur á óvart. Aðrir bæta litlu við lögin og ná ekki alveg að gefa þeim þann persónuleika sem þarfnast. Hljómur plötunnar er líka örlítið flatur, kannski er hljóðjöfnunni um að kenna, en nokkur lög ná þó skemmtilegri vídd. Platan á samt vafalaust eftir að kæta krakka á öllum aldri og getur komið öllum í gott stuð. Steinþór Helgi Arnsteinsson
Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Arnór Sig kominn á fast Lífið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Bíó og sjónvarp „Erum bara vinir“ Lífið Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Lífið Fleiri fréttir Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira