Heita á Eurovision 28. mars 2007 09:00 Sveinn Rúnar Sigurðsson, til hægri, tekur við styrknum.
Heitið hefur verið allt að tveimur og hálfri milljón króna á hópinn sem tekur þátt í Eurovision-keppninni í Helsinki í vor. Sveinn Rúnar Sigurðsson, höfundur lagsins Ég les í lófa þínum eða Valentine Lost eins og það útleggst á ensku, hefur skrifað undir samstarfssamning við SPRON. Með samningnum verður fyrirtækið bakhjarl Eurovision-hópsins. Styrktarfyrirkomulagið er grunnstyrkur og auk þess áheit um meiri styrk eftir velgengni í keppninni. Þannig er grunnstyrkurinn 1.500.000 kr., fyrirheit um 500.000 kr. til viðbótar ef lagið kemst áfram upp úr undankeppninni og svo aftur fyrirheit um 500.000 kr. ef lagið toppar árangur Icy-hópsins frá 1986 og verður ofar en í 16. sæti í úrslitakeppninni 12. maí. Auk þess verður efnt til áheita- og verðlaunaleiks á spron.is þar sem heppnir þátttakendur fá í verðlaun ferð fyrir tvo á Eurovision-keppnina. Jafnframt má geta nýrrar heimasíðu Eurovision-hópsins, www.esciceland.com.
Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Arnór Sig kominn á fast Lífið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Bíó og sjónvarp „Erum bara vinir“ Lífið Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Lífið Fleiri fréttir Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira