Jón Sæmundur opnar í dag 6. júlí 2007 03:00 Jón Sæmundur Auðarson opnar í dag nýja búð á Laugavegi og hleypir af stokkunum útgáfufyrirtækinu Dead Records. Fréttablaðið/Anton Fréttablaðið/Anton
Jón Sæmundur Auðarson opnar í dag nýja búð sem selur Dead-vörumerkið hans, rokkabillí-föt og silkiprentunarútbúnað. Auk þessa hefur hann stofnað tónlistarútgáfuna Dead Records. „Mér líður eins og ég sé kominn aftur heim. Nú er það aftur bara rokk og ról og prenterí,“ segir Jón Sæmundur Auðarson sem opnar í dag búðina Dead í bakhúsi á Laugavegi 29, á móti Skífunni. Jón Sæmundur rak áður Nonnabúð og Liborius, sem hann seldi nú nýverið. „Ég náði orðið svo illa að sinna mínu. Bissnessinn tók alltof mikinn tíma.“ Nýja búðin er við hliðina á vinnustofu Jóns Sæmundar og hann segir það vera mjög gott að hafa allt svona á sama stað. Í búðinni verður hönnun frá Jóni Sæmundi og þrjú fatamerki sem hann tók með sér úr Liborius.Breiðir út boðskapinnDead Records Hljómsveitin The Way Down er fyrsta bandið sem gefur út hjá hinu nýstofnaða útgáfufyrirtæki Dead Records.Auk fatnaðarins er seldur ýmiss konar búnaður og efni til silkiprentunar fyrir þá sem vilja prenta á sín eigin föt. Þá selur hann boli á góðu verði sem hægt er að prenta á. „Ég vil koma þekkingunni áfram, breiða út boðskapinn.“ Jón Sæmundur stefnir líka á að fara að gera meira fyrir hljómsveitir eins og prenta á nokkra boli til að selja á tónleikum og á tónleikaferðalögum. PlötuútgáfaJón Sæmundur er ekki bara að opna nýja búð. „Við erum að fara af stað með tónlistarútgáfu sem er hluti af Dead-konseptinu, Dead Records. Fyrsta platan kemur út í dag.“ Jón Sæmundur segir að markmið útgáfunnar sé að gefa út góða tónlist og koma henni til fólks sem hefur áhuga á henni. „Við erum ekki að þessu til að græða peninga og ætlum að selja þetta eins ódýrt og við getum. Við ætlum ekki að gera neina útgáfusamninga og erum líka opnir fyrir öllu mögulegu, líka myndlistartengdara efni.“ The Way DownFyrsta platan sem kemur út hjá útgáfuarmi Dead er stuttskífan See you in Hell með hljómsveitnni The Way Down. Hana skipa Ari Eldon sem var meðal annars í hljómsveitunum Sogblettir og Dópskuld, Riina Finnsdóttir og Magnús Þorsteinsson. „Þetta er bjöguð popptónlist,“ segir Ari Eldon um tónlist sveitarinnar. „Ég vil hafa þetta nógu einfalt og hrátt. Mér er farið að leiðast of flóknir hlutir og þetta eru allt stutt og einföld lög.“ jara@frettabladid.is
Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Arnór Sig kominn á fast Lífið Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Bíó og sjónvarp Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Fleiri fréttir „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira