Apókrýfa í Skálholti og fleira hollt 7. júlí 2007 06:00 Hugi Guðmundsson tónskáld. Nýtt verk hans verður frumflutt í Skálholti í dag.
Sumartónleikar í Skálholti halda áfram: stórviðburður helgarinnar er Íslandsfrumflutningur á nýju verki eftir Huga Guðmundsson, APOCRYPHA, sem jafnframt er lokaverkefni hans úr Sonology-stofnuninni í Den Haag í Hollandi. Verkið er fyrir mezzósópran, barokkhljóðfæri og gagnvirk tölvuhljóð og fyllir heila tónleika. Þeir áttu að vera í dag kl. 15 en verða færðir til kl. 17. Þess í stað verða tónleikar Nordic Affect kl. 15. Að öðru leyti er dagskrá helgarinnar óbreytt. Er fyrirlestur kl. 14:00 sem ber yfirskriftina „Hvað er Apocrypha?“. Verkið verður svo flutt tvívegis á Sumartónleikum, í dag og á morgun. Flytjendur eru barokksveitin Nordic Affect og Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran. Stjórnandi er Daníel Bjarnason. Um stjórn tölvunnar og aðra tæknilega stjórnun sér Hugi um sjálfur. Verkið var frumflutt þann 29. júní sl. í Den Haag og hlaut frábærar viðtökur. Hugi Guðmundsson hefur vakið mikla athygli seinustu misseri fyrir tónsmíðar sínar. Eftir lokapróf frá tónfræðadeild Tónlistarskólans í Reykjavík vorið 2001 hélt Hugi til Kaupmannahafnar til áframhaldandi tónsmíðanáms við Konunglegu Tónlistarakademíuna og lauk MMus gráðu þaðan vorið 2005. Nú í vor lauk hann svo mastersnámi í raf- og tölvutónlist frá Sonology-stofnuninni í Den Haag í Hollandi. Þar var lokaverkefni hans verkið Apocrypha. Verk Huga spanna allt frá einleiksverkum til hljómsveitarverka og eru verk hans leikin reglulega bæði hér heima og erlendis. Hann hefur starfað með mörgum af helstu tónlistarmönnum og –hópum landsins. Verkið Adoro te devote sem hann skrifaði fyrir Mótettukórinn og Raschér saxafónkvartettinn var tilnefnt til íslensku tónlistarverðlaunanna 2005. Hann var tilnefndur annað árið í röð til þeirra verðlauna árið 2006, þá fyrir verkið Eq. IV: Windbells en það verk hafði sama ár hlotið viðurkenningar í báðum verðlaunaflokkunum á alþjóðlega tónskáldaþinginu í París, Rostrum 2006. Eq. IV: Windbells, sem upphaflega var skrifað fyrir tónleika Caput-hópsins á heimssýningunni í Japan 2005, er nú eitt af mest leiknu verkum Huga og verður það til að mynda flutt þrisvar sinnum utan Íslands í ágúst. Reyndar vill það svo til að tveir flutninganna fara fram samtímis í Svíþjóð og Danmörku á sitthvorri tónlistarhátíðinni. Barokksveitin Nordic Affect átti að binda enda á Sumartónleikana en mun nú leika á fyrri tónleikum dagsins. Þar verða flutt níu verk frá sautjándu og átjándu öld. Nordic Affect var stofnaður 2005 af Höllu Steinunni Stefánsdóttur barokkfiðluleikara og Karl Nyhlin lútuleikara. Í hópnum eru hljóðfæraleikarar frá Evrópu, Bandaríkjunum og Ástralíu. Þau eiga það sameiginlegt að vilja veita fólki innsýn í ríkidæmi tónlistar 17. og 18. aldar og koma að flutningi nútímatónlistar á upprunaleg hljóðfæri. Hljóðfæraleikararnir hafa komið víðs vegar fram á tónleikum og tónlistarhátíðum bæði austan hafs og vestan. Á þessum fyrstu starfsárum hefur NoA komið fram á Norðurlöndunum, þ.m.t. á Sumartónleikum í Skálholti og Renaissance Music Festival í Kaupmannahöfn. Nú í vor hrundu þau af stað tónleikaröð í Þjóðmenningarhúsinu, Reykjavík. Helstu verkefni sumarsins eru tónleikahald í Haag í Hollandi og á Sumartónleikum í Skálholti. Ókeypis aðgangur er að öllum tónleikum og fyrirlestrum. Tónleikahátíðin hefur frá upphafi lagt áherslu á barrokk- og samtímatónlist, og er sú eina sinnar tegundar hér á landi. Umfang og starfsemi hátíðarinnar hefur vaxið frá ári til árs og laðar nú að sér erlenda tónlistarmenn og fjölda ferðamanna. Upplýsingar um dagskrá er að finna á www.sumartonleikar.is.
Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Arnór Sig kominn á fast Lífið Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Fleiri fréttir „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira