Syngur til heiðurs móður á stórtónleikum á Akureyri 26. júlí 2007 00:45 Kristján Jóhannsson syngur á stórtónleikum á Akureyri 9. september. Hann syngur þá á heimaslóðum í fyrsta sinn síðan 2003. fréttablaðið/þök
Stórtónleikar með Kristján Jóhannsson óperusöngvara í fararbroddi verða haldnir í Íþróttahöllinni á Akureyri í september. Stórtónleikarnir fara fram sunnudaginn 9. september, og að ósk Kristjáns munu þeir bera yfirskriftina „Fyrir mömmu“, en móðir hans, Fanney Oddgeirsdóttir, verður níræð 14. september næstkomandi. „Ég hef alltaf verið mikill mömmustrákur,“ segir Kristján. „Í raun erum við að lof-syngja allar mæður, því móðurhlýjan er hverjum manni dýrmæt,“ bætir hann við. Kristján hefur ekki sungið á Akureyri, sem er heimabær stórsöngvarans, síðan vorið 2003, þegar sálumessa Verdis var flutt í Íþróttahöllinni. „Það verður gaman að koma heim og syngja fyrir sitt heimafólk,“ segir Kristján. Í viðtali við Fréttablaðið fyrr í mánuðinum sagðist Kristján vonast til þess að endurfundirnir yrðu ánægjulegir. „Kannski verður maður bara eins og týndi sonurinn, alikálfinum slátrað og þar fram eftir götunum,“ sagði hann. Í sama viðtali sagðist Kristján hafa haft nóg að gera í kennslu. Corado Alessandro Cappitta, baritónsöngvari er einn nemenda Kristjáns, en hann mun syngja á tónleikunum, ásamt grísku sópransöngkonunni Sofiu Mitropoulos. „Hann er í raun fyrsti opinberi nemandinn minn og þótt ég segi sjálfur frá hefur hann tekið ótrúlegum framförum, enda er hann kappsfullur og með mikinn metnað,“ segir Kristján. Hann tengist Sofiu Mitropoulus einnig, því þau hafa sama umboðsmann í Mílanó. „Þar heyrði ég í henni fyrst,“ segir Kristján, sem hreifst strax af söng hennar. „Sofia er ekki bara góður söngvari; hún er mikill listamaður, sem á auðvelt með að hrífa áheyrendur upp í hæstu hæðir með sínum sterku tilfinningum,“ segir hann. Guðmundur Óli Gunnarsson heldur utan um tónlistarflutninginn með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, en hann hefur verið aðalstjórnandi hennar frá upphafi. Gísli Sigurgeirsson er í undirbúningsnefnd fyrir tónleikana, en Knattspyrnudeild KA sér um framkvæmdina. „Þetta verða óperutónleikar í léttari kantinum, með aðgengilegri dagskrá sem allir ættu að hafa gaman af,“ sagði hann. Á efnisskránni eru óperuaríur, dúettar og einnig ítölsk sönglög, að sögn Gísla. „Titillagið er Mamma, og það eru þarna fleiri óperuverk þar sem sungið er til móður,“ útskýrði hann. Tónleikarnir fram í Íþróttahöllinni á Akureyri, sunnudaginn 9. september.
Mest lesið Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Bíó og sjónvarp Best að geta elt draumana saman Lífið Guðni og gellurnar mættu í kokteilboð Lífið Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Er Rothschild-ættin að sölsa undir sig allan heiminn? Lífið Laufey og Collab í eina sæng Lífið Stjörnulífið: Hilmir Snær og Vala Kristín kósí í Laugum Lífið Minnast Davíðs: Hugrakkur, hnyttinn og stór í sniðum Lífið Ástrós Trausta og Adam kveðja Fossvoginn Lífið Jóhanna Vigdís greindist með MS Lífið Fleiri fréttir Lagið minnti á sig í sambandsslitunum Einn vinsælasti íslenski tónlistarmaðurinn óþekktur hérlendis Laufey segir skilið við Wasserman í skugga Epstein-skandals Sturluð vika hjá Kristmundi Axel Úr barnaskemmtunum á klúbbinn Í fyrsta sinn á föstu á Valentínusardaginn 52 ára Sjóðandi hiti hjá stjörnum rappsins Segir bless og sjáumst aldrei við Wasserman Inspector Spacetime í Apple auglýsingu: „Mjög súrrealískt“ „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Sjá meira