Það er engin leið að hætta Trausti Júlíusson skrifar 27. júlí 2007 00:15 Fjögurra diska DVD-pakkinn Biggest Bang kemur út í næstu viku.
A Bigger Bang-tónleikaferð Rolling Stones hófst með tónleikum í Boston 21. ágúst 2005 og stendur enn yfir. Hún er þegar orðin stærsta tónleikaferð rokksögunnar og sló þar með út Vertigo-túr U2. Samkvæmt Sunday Times hefur Stones-veldið hagnast um einn og hálfan milljarð punda (um 182 milljarða íslenskra króna) á tónleikahaldi síðan 1989. Það verður að teljast nokkuð gott sérstaklega í ljósi þess að hljómsveitin hefur ekki komið lagi inn á vinsældarlista í aldarfjórðung og plöturnar þeirra seljast ekki mjög mikið lengur. A Bigger Bang sem kom út 2005 og hlaut glimrandi viðtökur gagnrýnenda hefur t.d. aðeins selst í rúmlega 500 þúsund eintökum í Bandaríkjunum. Í næstu viku kemur út fjögurra diska DVD-pakki með efni frá fyrri hluta Bigger Bang-túrsins, 2005 – 2006.Yfir sjö tímar af efniTónleikapakkinn heitir The Biggest Bang. Á honum eru tveir tónleikar í heild sinni; frá Zilker Park í Austin í Texas og Copacabana-ströndinni í Rio De Janeiro í Brasilíu. Auk þess eru 7-8 lög frá þremur tónleikum til viðbótar. Saitama í Japan, Shanghai í Kína og Buenos Aires í Argentínu. Það er líka heimildarmynd í fullri lengd um tónleikaferðina og að auki styttri heimildarmyndir, aukalög og viðtöl við meðlimi hljómsveitarinnar. Yfir sjö klukkutímar í heildina. Alls eru 55 lög á diskunum fjórum og sveitin kemur víða við þó að auðvitað séu tvær útgáfur af nokkrum laganna og reyndar þrjár af Satisfaction. Það eru líka nokkur fáheyrð tökulög, þ.á.m. Learnig The Game eftir Buddy Holly, Temptations-lagið Ain’t Too Proud To Beg, Get Up, Stand Up eftir Bob Marley og Otis Redding slagarinn Mr. Pitiful. Það er nokkuð skondið að sjá þessa gömlu hunda spreyta sig á soul og reggí-tónlist og virðingarvert af þeim að heiðra snillinga eins og Marley og Otis.Fyrstu tónleikarnir í KínaÞað er margt merkilegt við þessa tónleikaferð Stones. Sviðið er það stærsta sem byggt hefur verið fyrir tónleikaferðir. Hæðin er á við sex hæða blokk. Það er áætlað að um 2 milljónir manna hafi mætt á tónleikana á Copacabana-ströndinni sem voru ókeypis. Sveitin spilaði líka í hálfleik á Super-Bowl í febrúar 2006 sem 98 milljónir horfðu á. Tónleikarnir í Shanghai voru þeirra fyrstu í Kína, en það tók kínversk stjórnvöld 40 ár að gefa sveitinni grænt ljós. Það var þó ekki án skilyrða þar sem Stones urðu að lofa að spila ekki nokkur lög sem voru talin hættuleg æsku landsins, þ.á.m. Brown Sugar, Honkey Tonk Women og Let’s Spend The Night Together. Það er langt frá því að Stones spili alltaf sömu lögin á tónleikunum eins og algengt er á tónleikaferðum stórhljómsveita. Það er mjög mikill munur á milli tónleika og hljómsveitin æfði yfir 100 lög fyrir túrinn. Maður getur spurt sig hvernig þeir nenni þessu. Af hverju slaka þeir ekki bara á og njóta allra milljarðanna? Svarið er augljóst þegar maður horfir The Biggest Bang. Þeir hafa bara svo helvíti gaman af þessu enn...
Mest lesið Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Danny Glover með Alzheimer Bíó og sjónvarp Grætti nánast alla í athöfninni Lífið Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Lífið Krýndur tískukóngur fótboltans Tíska og hönnun Michael Byrne er látinn Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? Lífið Fleiri fréttir Söngvari YMCA látinn Halldór Haraldsson er látinn Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Hjartað slær í Hafnarfirði: „Við erum búin að sprengja það alveg utan af okkur“ Quarashi hyggst „Do it again“ Kvennatónlistarhátíð Rodrigo vekur athygli Tónlistargoðsögnin Clive Davis er látinn Jeremy Strong „reivaði“ við Retro Stefson Bein útsending frá Bergmáli á Þingvöllum Tay Keith er fallinn frá aðeins 29 ára að aldri Hipsumhaps rýfur þögnina „Ég er skíthræddur“ Tónlistin bjargráð eftir erfiða kulnun Bonnie Tyler vöknuð úr dái Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Madonna með heitustu dansmynd ársins Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum „Pólitíkusar sem tala á þennan veg: Fokk jú“ „Þú getur ekki ráðist að mér þegar ég er að borða með ömmu minni“ Peabo Bryson er látinn Datt af sviðinu og beint í skurð „Stundum verður maður að segja fokk it“ „Við skoðuðum þennan markað og hann var allur í lausu lofti“ Íslenskur tónlistararfur loksins aðgengilegur öllum Sjá meira