Söngskólinn skorar á kóra 9. ágúst 2007 05:15 Garðar Cortes, skólastjóri Söngskólans í Reykjavík, skorar á kóra og söngelskan almenning að mæta í söngveislu við skólann á menningarnótt. MYND/stefán
Söngskólinn í Reykjavík og menningarnótt hyggjast efna til söngveislu á menningardaginn 18. ágúst, undir yfirskriftinni Syngjum saman við Söngskólann! Stefnt er að því að samfelld söngdagskrá verði í gangi við hús Söngskólans í Reykjavík, að Snorrabraut 54, frá 15 til 18. „Við viljum fá Reykvíkinga til að koma og syngja með okkur,“sagði Garðar Cortes, skólastjóri Söngskólans. Aðaláhersla verður lögð á að fá viðstadda til að hefja upp raust sína og taka þátt í fjöldasöng. „Við gerðum þetta í gamla daga þegar við vorum í Óperunni. Þá sungum við með borginni, það voru mörg þúsund manns á Arnarhóli og í Lækjargötu sem sungu saman,“ sagði Garðar. Óperukórinn, undir stjórn Garðars, mun ríða á vaðið og opna dagskrána, en þá tekur fjöldasöngur við. Inn á milli munu kórar úr borginni syngja fyrir áheyrendur. „Söngskólinn skorar á alla kóra sem hafa áhuga og tækifæri til að mæta á svæðið til að koma og syngja tvö, þrjú lög fyrir okkur,“ sagði Garðar. Stjórnendur kóranna munu jafnframt aðstoða Garðar við stjórn fjöldasöngsins.Við viljum fá Reykvíkinga til að koma og syngja með okkur,sagði Garðar Cortes, skólastjóri Söngskólans. Aðaláhersla verður lögð á að fá viðstadda til að hefja upp raust sína og taka þátt í fjöldasöng. Við gerðum þetta í gamla daga þegar við vorum í Óperunni. Þá sungum við með borginni, það voru mörg þúsund manns á Arnarhóli og í Lækjargötu sem sungu saman,sagði Garðar. Óperukórinn, undir stjórn Garðars, mun ríða á vaðið og opna dagskrána, en þá tekur fjöldasöngur við.Inn á milli munu kórar úr borginni syngja fyrir áheyrendur. Söngskólinn skorar á alla kóra sem hafa áhuga og tækifæri til að mæta á svæðið til að koma og syngja tvö, þrjú lög fyrir okkur,sagði Garðar. Stjórnendur kóranna munu jafnframt aðstoða Garðar við stjórn fjöldasöngsins.Söngskólinn óskar eftir því að áhugasamir kórar hafi samband, á songskolinn@songskolinn.is, til að fá nánari upplýsingar.
Mest lesið Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Bíó og sjónvarp Best að geta elt draumana saman Lífið Guðni og gellurnar mættu í kokteilboð Lífið Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Er Rothschild-ættin að sölsa undir sig allan heiminn? Lífið Laufey og Collab í eina sæng Lífið Stjörnulífið: Hilmir Snær og Vala Kristín kósí í Laugum Lífið Minnast Davíðs: Hugrakkur, hnyttinn og stór í sniðum Lífið Ástrós Trausta og Adam kveðja Fossvoginn Lífið Jóhanna Vigdís greindist með MS Lífið Fleiri fréttir Lagið minnti á sig í sambandsslitunum Einn vinsælasti íslenski tónlistarmaðurinn óþekktur hérlendis Laufey segir skilið við Wasserman í skugga Epstein-skandals Sturluð vika hjá Kristmundi Axel Úr barnaskemmtunum á klúbbinn Í fyrsta sinn á föstu á Valentínusardaginn 52 ára Sjóðandi hiti hjá stjörnum rappsins Segir bless og sjáumst aldrei við Wasserman Inspector Spacetime í Apple auglýsingu: „Mjög súrrealískt“ „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Sjá meira