Íslenskt gullauga Þráinn Bertelsson skrifar 8. október 2007 05:30 Í allri hinni neikvæðu umræðu um okur, græðgi og einkavinavæðingu á Íslandi hefur gleymst að halda því til haga að íslenskur almenningur býr við mikil ókeypis hlunnindi. Til dæmis stendur hverjum sem er til boða að þamba nægju sína af köldu vatni úr næsta krana frítt og gratis. Það gefur auga leið að lítil arðsemi er að því að heil þjóð drekki sitt vatn ómælt og ókeypis, ekki síst þar sem að minnsta kosti þrjár þaulreyndar aðferðir eru þekktar til að gera vatnsþambið arðbært. FYRSTA LEIÐIN og sú elsta og íhaldssamasta er að vatnsból verði að nafninu til í sameign þjóðarinnar en nýtingarrétti verði úthlutað til þeirra stórtækastir eru í vatnsþambinu því að þeirra er augljóslega mest þörfin. Þannig mætti breyta verðlausu vatni í verðmætan vatnskvóta sem í praxís gæti gengið kaupum og sölum milli þeirra sem kunna eitthvað fyrir sér í viðskiptum, þótt eignarrétturinn væri í teóríunni hjá hinum uppþornaða almenningi. ÖNNUR LEIÐIN væri sú að einkavæða vatnsból, ár og uppsprettur og jökla áður en þeir bráðna af sjálfum sér og skipa einkavæðingarnefnd í málið og leita eftir tilboðum frá kjölfestufjárfestum auk þess sem hvert mannsbarn á landinu fengi að kaupa hlutabréf upp á allt að tíu lítra. Þannig mundi þjóðin læra að meta kalda vatnið samkvæmt skynsamlegum reglum hins frjálsa markaðar með hóflegri verðlagningu, góðum greiðslukjörum og mjúkum innheimtuaðgerðum. ÞRIÐJA LEIÐIN og sú þjóðlegasta væri að einkavinavæða hvern deigan dropa á landinu, allt sem inniheldur H20 frá sagga í húsum til fossúða og allt þar á milli þótt heimilt væri áfram að pissa í skóinn sinn. Þjóðin er svo lánsöm að eiga menn sem kunna þetta ferli á fingrum sér og gætu smurt hið stirða opinbera kerfi með velvöldum kaupréttarheimildum og friðað almenning með útrásarórum. Til dæmis mætti hugsa sér að Vatnsveitan í samvinnu við Green Water Group Capital keyptu Sahara-eyðimörkina með það fyrir augum að breyta henni í stærsta kartöflugarð í heimi og kenna öllum jarðarbúum að ekkert í veröldinni jafnast á við hið íslenska gullauga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þráinn Bertelsson Mest lesið Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun Nemendur okkar eiga meira skilið en tölu Fiona Oliver,Yrsa Rós Brynjudóttir Skoðun „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon Skoðun Hver borgar þegar borgin sparar? Kári Sigurðsson Skoðun Segjum JÁ til að styrkja frelsi okkar og fullveldi Þorkell Helgason Skoðun
Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun