Raggi fer til Feneyja Páll Baldvin Baldvinsson skrifar 23. nóvember 2007 06:00 Ragnar Kjartansson myndlistarmaður. Vísir/GVA
Tilkynnt var í gær við hátíðlega athöfn í Listasafni Íslands sem Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar stóð fyrir að Ragnar Kjartansson, myndlistarmaður með meiru, yrði fulltrúi Íslands á Tvíæringnum í Feneyjum 2009. Í þann mund sem athöfnin stóð yfir voru menn í óða önn að pakka saman í Feneyjum sýningu Steingríms Eyfjörð Kristmundssonar sem staðið hefur frá í vor og á fjórða tug þúsunda gesta sótti. Framkvæmdastjóri Kynningarmiðstöðvar, Christian Schoen, stýrði athöfninni í gær og flutti þakkarorð þeim mörgu sem lögðu sýningunni í Feneyjum lið í sumar, sýningarstjóranum Hönnu Styrmisdóttur, styrktaraðilum öllum og ráðuneytinu. Christian stóð að baki þeirri ákvörðun að draga sýningarhald Íslands að Stóra kanal, býsna langt frá aðalsýningarsvæðinu í austurhluta Feneyja þar sem sýningarhald tvíæringsins er jafnan. Var sýningu Steingríms komið fyrir í Palazzo Bianchi Michiel þar sem grunnhæðin gaf möguleika á talsvert góðu rými til sýningarhaldsins. Sýningin vakti talsverða athygli, fékk lofsamlega dóma í meðal annars Observer og Kunstforum international. Verður sýningin sett upp í heild í janúar hér í Listasafni Reykjavíkur en það kom að framkvæmdinni með tilleggi í hina myndarlegu sýningarskrá. Menntamálaráðherra lýsti vilja sínum til sóknar á þessum mikilvæga stað í hinum alþjóðlega myndlistarheimi. Það væri einlægur vilji sinn að gera betur en í gær og fyrradag: síðan tilkynnti hún að Ragnar Kjartansson yrði fulltrúi Íslands í sumarbyrjun 2009. Það er valnefnd skipuð þeim Rúrí, Christian Schoen og Hafþóri Yngvasyni sem ræður þessari tilskipan en hún naut ráðgjafar máttarstólpa í íslensku myndlistarlífi. Ragnar var að vonum ánægður, nýkominn frá Feneyjum þar sem hann leit á Tvíæringinn og skoðaði aðstæður. Hann sagði að nú væri hann bara í fegurðardrottningarfílingnum, hann vissi ekki hvað hann fengi af fjármagni til að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd, né heldur hvort enn yrði notast við höll hins bjarta Mikaels. Hann var reyndar mest í kossum og faðmlögum meðan blaðamaður reyndi að tala við hann. Viðbrögðin við sýningu Steingríms á alþjóðavettvangi vekja með ungum myndlistarmanni vonir um að hann nemi ný lönd: Steingrímur sýnir í haust á Max Protetch Galleríinu í New York og mun koma til álita sem þátttakandi í Manifesta og tvíæringnum í Berlín. Ragnar sér því leik á borði. Ragnar er fæddur 1976 í Reykjavík. Hann er sonur þeirra Guðrúnar Ásmundsdóttur, leikskálds, leikkonu og leikstjóra, og Kjartans Ragnarssonar, leikstjóra og leikskálds, og er alnafni afa síns, sem var mikill frumkvöðull í íslenskri myndlist. Ragnar byrjaði ungur að koma fram, var um árabil kórdrengur í Landakoti, en sneri sér síðan á námsárum að tónlistarflutningi í hinni geðþekku hljómsveit Kósý. Hann stundaði nám við Listaháskólann og hefur frá útskrift lagt sig eftir ýmsum listformum. Hann er þekktastur sem tónlistarmaður með hljómsveitum á borð við Trabant og Funerals, en hefur sem myndlistarmaður tekið þátt í fjölda samsýninga, sett upp installationir eða innsetningar, framið gerninga, unnið með myndbönd, olíu, teikningar, ljósmyndir og fleira. Hann er nýkominn frá New York þar sem hann var við gerninga og einkasýningu hans í Nýló er nýlega lokið. Hann vinnur nú við smíði á leikmynd fyrir sviðsetningu Benedikts Erlingssonar á leikverkinu Sólarferð í Þjóðleikhúsinu. Þátttaka íslenskra myndlistarmanna í Feneyjum var lengi stopul og áttu þeir sér ekki annað skjól en gestasali uns gamli finnski skálinn var laus. Íslenskir arkitektar hafa aldrei tekið þátt í Feneyjatvíæringnum sem haldinn er á móti myndlistartvíæringnum, né hefur Íslendingum tekist að komast á kvikmyndahátíðina með verkefni. Við eigum því marga sigra óunna á eyjunum undan Pó.
Mest lesið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Lífið Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira Lífið Fleiri fréttir Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira