Sport

Ísland lagði Króata

Íslenska landsliðið í badminton vann í dag góðan 4-1 sigur á því króatíska í fyrsta leik sínum á Evrópumóti B-þjóða sem fram fer í TBR húsinu. Magnús Helgason tapaði leik sínum í einliðaleik karla, en Ragna Ingólfsdóttir sigraði andstæðing sinn í einliðaleik kvenna. Þá vann liðið sigra í tvíliðaleikjum karla- og kvenna og svo í tvenndarleik.

Íslenska liðið leikur í riðli með Portúgal og Ítalíu, en þessar þjóðir mættust í dag og höfðu Portúgalar betur 3-2. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×