1.500 til 2.000 tonn af vatni í bílakjallara 11. mars 2007 10:15
Slökkviliðið á Höfuborgarsvæðinu er nú að kljást við einn mesta vatnsleka sem það hefur komist í kast við en heill bílakjallari undir nýlegu fjölbýlishúsi við Sólvallagötu er umflotinn vatni. Húsið tilheyrir Sólvallagötu 80 til 84 en er bak við BYKO verslunina við Hringbraut. Að sögn slökkviliðs er bílakjallarinn um þúsund fermetrar og er vatnshæðin í honum um einn og hálfur metri. Þess utan er kjallari undir bílakjallaranum sem er alveg á kafi. Áætlað er að um fimmtánhundruð til tvöþúsund tonn af vatni séu í húsinu. Tveir dælubílar ásamt dælum úr húsinu eru að losa vatnið og sér nú aðeins högg á, að sögn varðstjóra. Kjallarinn er undir sjávarmáli og eru sjálvirkar dælur í kjallara hússins sem virðast hafa slegið út í nótt. Þó er þetta ferskvatn sem verið er að dæla upp en mikill vatnselgur var á götum þarna í kring í nótt. "Þetta hlýtur að jaðra við íslandsmet í vatnsleka", sagði varðstjóri slökkviliðs sem man ekki eftir öðru eins. Um 15 til 20 bílar eru í kjallaranum og ljóst er að eitthvað tjón á eftir að hljótast af vatninu. Það hefur lekið inn í sama kjallara áður en það var á aðfangadag 2004. Þá var það sjór sem lak inn í kjallarann.
Fréttir Innlent Mest lesið Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Hafði komið sér í fyrir á háalofti hótels Innlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Erlent Fyrstu þreifingar áramótaveðurspár Veður Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Erlent Fleiri fréttir Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér í fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Sjá meira