Ríkisstjórnin hefur sent heimilunum 38 milljarða reikning 13. apríl 2007 17:10
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, sagði í ræðu sinni á landsfundi flokksins í Egilshöll í dag að ríkisstjórnin hefði sent heimilum landsins 38 milljarða króna reikning vegna verðbólgu og ofurvaxta á þessu ári. Samfylkingin myndi eyða biðlistum eftir hjúkrunarrýmum fyrir aldraða á næstu tveimur árum og þá myndi hún beita sér fyrir því að hinum umdeildu eftirlaunalögum yrði breytt. Ingibjörg sagði síðasta kjörtímabil hafa einkennst af pólitískum sviptingum þar sem risið hefðu upp harðari deilur en dæmi væri um í langan tíma. Þá sagði hún tvö mál standa enn eins og flein í holdi þjóðarinnar. Það væri annars vegar Íraksmálið og hins vegar eftirlaunamálið. Sagði hún að það ætti að verða verk nýrrar ríkisstjórnar að taka Ísland út af lista hinna vígfúsu þjóða. Enn fremur ætlaði hún að beita sér fyrir því að hinum umdeildu eftirlaunalögum yrði breytt og meira jafnræði yrði komið á í lífeyrismálum ráðamanna og almennings. Ingibjörg vék síðan að efnahagsmálum og sagði kjörtímabilið sem er að ljúka hafa einkennst af miklum óstöðugleika í efnahagsmálum. Kosningavíxlar ríkisstjórnarinnar frá síðustu kosningum hefðu fallið einn af öðrum á þá sem síst skyldi. „Reikningurinn sem ríkisstjórnin sendir heimilunum í landinu bara á þessu ári vegna verðbólgu og ofurvaxta er ríflega 38 milljarðar. Greiðslubyrði hvers heimilis hækkar að meðaltali um 500 þúsund krónur vegna hagstjórnarmistaka ríkisstjórnarinnar,„ sagði Ingibjörg. Þá sagði hún að það væru engin merki um að ríkisstjórnarflokkarnir hefðu uppi áform um að slá á þensluna í hagkerfinu því þeir stefndu áfram að stórfelldum virkjana- og stóriðjuáformum og hefðu lofað skattalækkunum og útgjöldum upp á 400 milljarða króna. Sagði Ingibjörg jafnvægi í efnahagsmálum forsendu þess að fólk og fyrirtæki gætu kvíðalaust gert áætlanir um dagleg fjármál og fjárfestingar til framtíðar. Þá vék Ingibjörg að velferðarmálunum og sagði úrræðaleysi ríkisstjórnarinnar algert. Barnabætur hefðu verið skornar niður árum saman og skattleysismörk hefðu lækkað og skattbyrði lífeyrisþega og láglaunafólks þyngst. Þá hefðu lífeyrisþegar dregist aftur úr öðrum í kjörum. Þá stæðu almannatryggingarnar, sem íslenskir jafnaðarmenn hefðu komið á, ekki lengur undir nafni. Ingibjörg spurði hvort velferðarþjónustan væri betri en fyrir 12 árum og sagði svarið einfalt. „Biðlistar, biðlistar, biðlistar. Eftir hjúkrunarrýmum, eftir hjartaaðgerðum, eftir búsetu fyrir geðfatlaða, eftir greiningu á geðröskunum barna, eftir úrræðum fyrir þau, eftir sérkennslu. Það skortir lausnir," sagði hún. Sagði hún að Samfylkingin hygðist á fyrstu tveimur árum í ríkisstjórn byggja 400 hjúkrunarrýni fyrir aldraða og eyða þannig biðlistum. Það yrði algjört forgangsmál hjá nýrri ríkisstjórn jafnaðarmanna. Þá fjallaði Ingibjörg um menntamál og sagði mikilvægt að unga fólkið fyndi menntaleið við sitt hæfi. Þá þyrfti að tryggja raunverulegt jafnræði allra atvinnugreina og búa betur í haginn fyrir framtíðina. Tryggja þyrfti betra umhverfi fyrir sprota- og hátæknifyrirtæki. Sagði Ingibjörg að Samfylkingin vildi gera hlé á virkjana- og stóriðjuáformum og draga þannig úr fjárfestingum opinberra orkufyrirtækja um tugi milljarða á næstu árum. Með þessum hætti mætti skapa rými í hagkerfinu fyrir arbærar fjárfestingar í innviðum sem hefðu setið allt of lengi á hakanum. Vinna yrði að nýrri byggðastefnu nýrrar byggðastefnu með fjárfestingu í samgöngum, fjarskiptum og menntun á landsbyggðinni. Sagði Ingibjörg Samfylkinguna eina flokkinn sem setti fram hugmyndir um endurbætur á öllu skipulagi hagstjórnarinnar. Þar skiptu samráðsstjórnmál mestu máli en hvorki handafl né handbremsur. Þá sagði hún Samfylinguna eina flokkinn sem sett hefði fram heilstæða stefnu í málefnum barna og ungmenna og að flokkurinn væri sá eini sem vissi hvernig hvernig ætti að minnka kynbundinn launamun. Það hafi flokkurinn gert í Reykjavík. Sagði hún það vera verkefni Samfylkingarinnar að gera Ísland að fyrirmyndarsamfélagi á sviði jafnréttismála. Þá boðaði Ingibjörg verulegar kjarabætur til eldri borgara með hærra frítekjumarki og lægri skatta á lífeyristekjur. Þá vísaði Ingibjörg í umhverfisstefnu flokksins sem fram kemur í ritinu Fagra Ísland og sagði það heildstæðustu stefnuna í umhverfismálum sem íslenskur flokkur hefði mótað. Fagra Ísland væri nú sú Lilja sem aðrir flokkar vildu kveðið hafa, þeirra á meðal Vinstri græn. Jafnframt benti hún á að Íslendingar ættu að nýta sérfræðiþekkingu sína á sviði endurnýjanlegra orkugjafa til að styrkja stöðu sína í alþjóðlegum rannsóknum og vísindum og gera þá þekkingu að útflutningsverðmæti. Sagði hún mikilvægt að Samfylkingin fengi brautargengi í kosningunum eftir mánuð og að hver einasti maður og hver einasta kona þyrfti að ígrunda atkvæði sitt vandlega. Þúsundir atkvæða gætu fallið dauð á kjördag og hið óbreytta ástand varað áfram enn í fjögur ár vegna þessara atkvæða. Ú tsending frá landsfundi Samfylkingarinnar 13. apríl
Kosningar 2007 Mest lesið Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað Innlent Afstýrði vopnuðu ráni í Kópavogi: „Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ Innlent Fundu tvö dæmi um Kjartann en samt virðist enginn hafa borið nafnið Innlent „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Sorg í Mosfellsbæ eftir skemmdarverk á liðsrútunni Innlent Reyndist vera eftirlýstur Innlent „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Erlent Jens Garðar býður sig fram til varaformanns Innlent Borgin, utanríkismálin og kjaradeila kennara Innlent Fleiri fréttir 20 til 30 ný störf verða til í Árborg með tilkomu nýs öryggisfangelsis Jens Garðar býður sig fram til varaformanns Sorg í Mosfellsbæ eftir skemmdarverk á liðsrútunni Sameining sveitarfélaga á Suðurnesjum og stórleikur í körfunni Afstýrði vopnuðu ráni í Kópavogi: „Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ Borgin, utanríkismálin og kjaradeila kennara Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað Fundu tvö dæmi um Kjartann en samt virðist enginn hafa borið nafnið Reyndist vera eftirlýstur „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Stór skjálfti í Bárðarbungu Framkvæmd við heljarstórt hús geti orðið mikil lyftistöng Vilja breyta Landsbankanum í samfélagsbanka Búin að loka fyrir kort ungmenna á veðmálasíðum Veðmál barna og verslunarmiðstöð í Vogum Búðarhnuplari í efri byggðum reyndist vera eftirlýstur Segir málefnasamninginn ófjármagnað orðagjálfur Ákvörðun tekin án samráðs við nokkurn nema MS og Bændasamtökin Vilja skýrslu frá ráðherra um lokun flugbrautar Segir ekkert til í ásökunum KÍ um flokkadrætti Tíu ára stelpa frá Vík í úrslitum í Eurovision barna í Danmörku Samþykktu að breyta skráningu svo þiggja megi styrki Fer fram á stjórnsýsluúttekt á aðdraganda lokunarinnar Stjórnsýsluúttekt á lokun flugbrautarinnar og endurgreiðsla styrkja Skora á fulltrúa sveitarfélaganna að greina frá sinni afstöðu „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Festist í fjöru á höfuðborgarsvæðinu Vilja byggja 30 þúsund fermetra verslunarkjarna Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni „Flokkur fólksins virðist hafa látið plata sig algjörlega“ Sjá meira