Sport

Skylmingar: 35 íslenskir keppendur á NM

Alls taka 35 íslenskir keppendur þátt í Norðurlandamótinu í skylmingum sem verður haldið dagana 25. - 29. júní. Mótið verður í Óðinsvéum í Danmörku. Auk liðakeppni keppir Ísland í 11 flokkum.

Íslensku keppendurnir koma frá þremur félögum Skylmingarfélag Reykjavíkur á 19 fulltrúa, FH á 15 fulltrúa og Skylmingafélag Seltjarnarness á einn fulltrúa.

Skylmingarsamband Íslands hefur sett sér það takmark að ná Norðurlandameistaratitli í öllum flokkum sem keppt er í.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×