Alfesca skilar góðu uppgjöri 3. september 2008 00:01 xavier govare
Alfesca hagnaðist um 3,5 milljónir evra, jafnvirði 429 milljóna íslenskra króna, á öðrum ársfjórðungi, sem er sá fjórði í bókum félagsins. Þetta er svo til óbreytt staða frá því fyrir ári. Hagnaðurinn á árinu öllu nam 28,6 milljónum evra sem er 27,6 prósenta aukning á milli ára. Uppgjörið er yfir væntingum enda samdráttur á neytendamörkuðum í Evrópu líkt og sölutölur Alfesca benda til. en þær drógust saman um 5,4 prósent. Greiningardeild Glitnis bendir á að jákvæð skattfærsla upp á 3,5 milljónir evra hífi afkomuna upp auk þess að páskar féllu á fjórða ársfjórðung. Xavier Govare forstjóri er ánægður með afkomuna. Hann segir stjórnendur ekki hafa órað fyrir þeim verðhækkunum sem skollið hafi á og gert umhverfið afar krefjandi. Reiknað er með svipuðu árferði í nokkurn tíma. Greint var frá því í júní að Sheikh Mohamed bin Khalifa Al-Thani, bróðir emírsins í Katar, ætli að kaupa 12,6 prósenta hlut í Alfesca. Af því hefur enn ekki orðið en líkur eru á að af því verði fyrir ársfund félagsins í næsta mánuði. Þá verður sömuleiðis lagt til að greiddur verði út arður í fyrsta sinn, jafnvirði um 1,5 milljarða íslenskra króna. - jab
Markaðir Mest lesið „Að fyrirtæki líti inn á við áður en kolefnisjöfnun er keypt“ Atvinnulíf Um fimmtíu verið sektuð fyrir að greiða ekki rétt fargjald Neytendur Ráðin fræðslustjóri Samkaupa Viðskipti innlent Fólk muni eiga meira eftir í buddunni um mánaðamótin Neytendur Breytingar hjá Arctic Adventures með nýju skipuriti Viðskipti innlent Fékk milljón til baka vegna bílaleigubíls sem varð fyrir eldingu Neytendur Gervigreind fyrir klink veldur Bandaríkjamönnum hausverk Viðskipti erlent „Fullt af íslenskum fyrirtækjum í miklum vandræðum með þetta“ Atvinnulíf Það sem fáir fíla: Að þú setjir þig á of háan hest Atvinnulíf Fólk eigi ekki að greiða fyrir að nota peninginn sinn Neytendur Fleiri fréttir Ráðin fræðslustjóri Samkaupa Láta af óheimilli ríkisaðstoð við Sorpu Markaðurinn væntir vaxtalækkana Spá þriggja prósenta verðbólgu á næsta ári Breytingar hjá Arctic Adventures með nýju skipuriti Kolefnisförgunarstöð metin með hagsmuni íbúa að leiðarljósi Hæstiréttur tekur deilur Vinnslustöðvarinnar og ríkisins fyrir Nýir forstöðumenn hjá Motus Landsbankinn sé „svo sannarlega“ enn banki allra landsmanna Hallur Flosa rekstrarstjóri prentlausna hjá OK Telur furðulegt að „banki allra landsmanna“ veiti ekki íbúðalán í dreifbýli Berglind Una ný forstöðukona Digital Labs hjá Origo Loðnubrestur hefur gríðarleg áhrif á samfélagið Loðnumælingar gefa ekki ástæðu til bjartsýni Þrír nýir eigendur bætast í hópinn Vatnsbúskapurinn fer batnandi Hildur nýr mannauðsstjóri Distica Einkaþotufyrirtæki með skrautlega sögu svipt starfsleyfi vegna öryggismála Norska sjóbjörgunarsveitin semur við íslenskt fyrirtæki Boða til fundar með íbúum Ölfuss um kolefnisförgunarstöð Ari nýr tæknistjóri Fimmti hver leigjandi vildi heldur búa annars staðar Nýtt 68 herbergja hótel byggt á Hvolsvelli Taka jákvætt í kolefnisförgunarstöð í Ölfusi Ölgerðin kaupir Gæðabakstur Segir skipta gríðarlegu máli að fá loðnuvertíð Kaffi Kjós til sölu Skóari skellir í lás á Grettisgötunni Brotið á Jóhannesi en Birkir fer tómhentur frá Strassborg Karen inn fyrir Þórarin Sjá meira