Hommahasar Ólafur Sindri Ólafsson skrifar 24. apríl 2008 00:01 Þeirri staðreynd var vandlega haldið leyndri fyrir Íslendingum á sínum tíma að Júróvisjón-keppnin væri risavaxin hommaárshátíð. Hommar voru enda enn álitnir kynvillingar, ekki síst af því hégómlega fólki sem í alvöru hafði metnað fyrir því að vinna söngvakeppnina. Það var í raun hégóminn sem batt okkur skerjabúana norður í rassgati við hommaheri álfunnar. Samhljómurinn varð næsta algjör þar sem þetta var á hommalegasta áratug mannkynssögunnar í þokkabót. Það tók þá sem stóðu keppninni næst þó ekki langan tíma að átta sig á því hvers kyns var. Þegar Sverrir Stormsker var sendur út með fullkomið sigurlag (því það voru svo mörg útlensk orð í því) var sendur með honum ungur Stebbi Hilmars, bjartur á rödd sem hörund - klippimynd úr blautum draumi bjarnarhommatýpunnar. Til að tryggja aðdáun estrógenhommanna líka var Jón Páll látinn bera Stebba um svæðið öskrandi rödduð slagorð. Hefðu þeir svo tekið sig til og kysst að auki er alls óvíst að smettið á lukkutröllinu Sverri hefði náð að koma í veg fyrir sigur. Frá þessum degi höfum við aðeins sent þrjár tegundir af lögum í þessa keppni. Hommalög, hommafóbíulög og aríur. Aríur eru lög sem taka sig hátíðlega og eiga aldrei neinn séns (Bo Hall og Jónsi eru dæmi um þetta, þó sá síðarnefndi gæti reyndar fallið í tvo þessara flokka); hommafóbíulag allra tíma söng ungfrú Nótt, og Barði gerði heiðarlega tilraun til að endurtaka leikinn - og við höfum aldrei eignast hommalegra lag en This is My Life. Gjalda á Guði það sem Guðs er og keisaranum það sem keisarans er. Hví ekki að gjalda hommanum það sem hommans er. Hví ekki að einfalda veröldina svolítið aftur. Við svömlum í efnahagslegum ólgusjó og það kallar á einfaldari lífshætti og svarthvítari heimsmynd. Hommi með tónleika í Skálholti og hommar að þykjast vera iðnaðarmenn í húsbyggingu í raunveruleikasjónvarpi eru jafnfráleit fyrirbæri í kreppu og kynvísir menn að syngja í Júróvisjón. Eða gáfaðir trukkabílstjórar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Ólafur Sindri Ólafsson Mest lesið Svar við grein Dagnýjar Hængsdóttur Köhler Ragnheiður Magnúsdóttir,Halldóra Jónsdóttir,Óskar Þór Karlsson,Eiríkur Böðvarsson Skoðun Hvernig getur NATO verið, eða hafa verið, flott og fínt, en ESB slæmt? Ole Anton Bieltvedt Skoðun Eflum málumhverfi barna Bjarnfríður Leósdóttir,Harpa Stefánsdóttir,Hildur Rut Sigurbjartsdóttir,Silja Jóhannsdóttir,Þorbjörg Saga Ásgeirsdóttir Skoðun Örugg skref fyrir Ísland í alþjóðasamfélaginu Dagbjört Hákonardóttir Skoðun Aðgengismál í HÍ – Háskóli fyrir öll? Styrmir Hallsson Skoðun Björn til rektors Benedikt Hjartarson Skoðun Skipulagsslys í Garðabæ Aðalsteinn Árni Baldursson Skoðun Cześć Polskiej części VR Agata Maria Magnússon,Norbert Gruchociak Skoðun Hvar eru verndarar tjáningarfrelsisins nú? Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir Skoðun Yfir til ykkar, VR-ingar! Halla Gunnarsdóttir Skoðun
Svar við grein Dagnýjar Hængsdóttur Köhler Ragnheiður Magnúsdóttir,Halldóra Jónsdóttir,Óskar Þór Karlsson,Eiríkur Böðvarsson Skoðun
Eflum málumhverfi barna Bjarnfríður Leósdóttir,Harpa Stefánsdóttir,Hildur Rut Sigurbjartsdóttir,Silja Jóhannsdóttir,Þorbjörg Saga Ásgeirsdóttir Skoðun
Svar við grein Dagnýjar Hængsdóttur Köhler Ragnheiður Magnúsdóttir,Halldóra Jónsdóttir,Óskar Þór Karlsson,Eiríkur Böðvarsson Skoðun
Eflum málumhverfi barna Bjarnfríður Leósdóttir,Harpa Stefánsdóttir,Hildur Rut Sigurbjartsdóttir,Silja Jóhannsdóttir,Þorbjörg Saga Ásgeirsdóttir Skoðun