Þegar Chris Martin tók við öðrum af tveimur Brit-verðlaunum sem Coldplay fékk fyrir þriðju plötuna sína, X&Y, í ársbyrjun 2006 þá sagði hann m.a.: „Þakka ykkur fyrir. Nú munum við ekki sjá ykkur í langan tíma... Okkar bíður mikið verk.” Metnaðurinn sem hefur einkennt Coldplay allan ferilinn hefur ekkert minnkað. Eftir X&Y, sem þótti ágæt en samt of lík fyrri plötunum, ákvað Chris að nú þyrfti sveitin aldeilis að leggja sig fram til að næsta plata yrði betri. Og nú er fjórða platan komin. Hún heitir því þunglamalega nafni Viva La Vida or Death and All His Friends og var tekin upp með tveimur upptökustjórum, Brian Eno og Markus Drays.
Eno kallaður til

Eftir gerð X&Y ákvað Chris Martin að Coldplay þyrfti að „prófa nýja liti“ á næstu plötu. Hann réð Brian Eno til að stjórna upptökunum, en þeir kynntust árið 2001. Eno, sem skemmti nýlega gestum Listahátíðar í Reykjavík með spjalli og fékk þá til að syngja saman, er einn af virtustu upptökustjórum síðustu áratuga. Hann hefur mikið starfað með U2 og stjórnaði m.a. upptökum á nokkrum af plötum Talking Heads.
Chris og Eno tóku sér góðan tíma árið 2007 til að fara yfir aðferðafræði þess síðarnefnda án þess að taka nokkuð upp. Svo var farið í upptökur og á seinni stigum var öðrum upptökustjóra bætt í hópinn, Markus Drays, sem er þekktastur fyrir að hafa stjórnað upptökum á Neon Bible með Arcade Fire.
Bjartsýnisnafn og bölsýnisnafnAuk þess að hafa unnið að nýju plötunni hafa meðlimir Coldplay hlaðið niður börnum á síðustu árum. Chris á tvö með Gwyneth Paltrow, tveggja og fjögurra ára, gítarleikarinn Jonny Buckland á eitt sex mánaða, trommuleikarinn Will Champion á eitt tveggja ára og nokkurra vikna gamla tvíbura og bassaleikarinn Guy Berryman á eitt 20 mánaða gamalt.
Auk þess að vinna með Coldplay hefur Chris Martin unnið með tveimur af stærstu nöfnunum í hip-hop heiminum síðustu ár, Jay-Z og Kanye West. Um nafngiftina á nýju plötunni segir Chris að nöfnin séu tvö til að maður geti valið hvort hentar manni betur bjartsýnisnafnið (Viva La Vida!) eða bölsýnisnafnið (Death And All His Friends).
Platan hefur fengið ágæta dóma. Aðkoma Enos hefur gefið tónlistinni meiri dýpt og platan er líka fjölbreyttari en fyrri plöturnar. Hljómborðsleikarinn og „fimmti Coldplay-meðlimurinn” Phil Harvey gerir góða hluti á plötunni og það sama má segja um fiðluleikarann sem setur svip á nokkur laganna.
Vinsældirnar virðast líka ekkert vera að dvína, a.m.k. er fyrsta smáskífulagið Violet Hill vinsælasta lagið í íslensku útvarpi þegar þetta er skrifað.