Samdi lagið Þú og ég fyrir gamla vinnuveitandann Freyr Gígja Gunnarsson skrifar 11. ágúst 2008 05:00 Tónlistarmaðurinn KK er með mörg járn í eldinum um þessar mundir.
KK er með mörg járn í eldinum um þessar mundir. Hann á nýtt lag í auglýsingu fyrir SS og fyrsta plata hans í sex ár með eigin efni kemur út í október. Auk þess kennir hann á böskaranámskeiði á Skagaströnd um næstu helgi. KK segist margoft hafa verið beðinn um að selja lög sín í auglýsingar en aldrei látið eftir fyrr en nú. „Það var auglýsingaskrifstofa sem hringdi í mig og bað um lagið Ég fann ást til að nota í SS-auglýsingu. Ég hef spilað það í brúðkaupum og afmælum og á þetta lag eiginlega ekkert, þannig að ég gat það bara ekki,“ segir KK. SS gafst ekki upp því aftur var haft samband við KK og hann beðinn um að semja nýtt lag í staðinn. „Sem unglingur þá vann ég hjá þeim og sagðist skyldu reyna það. Ég var svo ánægður með það að ég er að spekulera í að hafa það á plötunni. Það er mikið af fólki búið að hafa samband og spyrja á hvaða plötu það sé. Ég segi að það sé ekki á neinni plötu, ekki enn þá,“ segir hann og kímir. Lagið nefnist Þú og ég og er ekta KK-lag ef svo má segja. Auglýsingar á gráu svæðiMegas var nýverið gagnrýndur fyrir að selja lag sitt í Toyota-auglýsingu og KK játar að tónlistarmenn sem selji lög sín í auglýsingar séu á gráu svæði. „Ef ég væri með boðskap í tónlistinni minni sem væri á móti því að fólk væri að borða kjöt væri það hallærislegt. En ég er alls ekkert á móti fyrirtæki eins og SS. Það er eitt af þessum fáu gömlu íslensku fyrirtækjum sem eru eftir og er partur af jólunum, páskunum, næturlífinu og bara öllu,“ segir hann og bætir við í léttum dúr: „Ef ég hefði sagt já við öll skiptin sem ég hef verið beðinn um lög í auglýsingar þá væru þeir að vinna hjá mér.“ Konungur böskarannaKK er þessa dagana að leggja lokahönd á fyrstu plötu sína með eigin efni í sex ár. Sú hefur fengið nafnið Svona eru menn og hefur að geyma blússkotið efni í bland við þjóðlagatónlist í anda Crosby, Stills & Nash með gítar og munnhörpu. Áður en hún kemur út ætlar KK að kenna á götuspilaranámskeiði á Kántrídögum á Skagaströnd helgina 14. til 16. ágúst. Honum til halds og trausts verður Leo Gillespie, konungur böskaranna, að sögn KK. „Þetta er maður sem á hvergi heima nema þar sem hann leggur hattinn sinn. Það er ekki til meiri böskari en hann,“ segir hann. Saman ætla þeir félagar því að kynna sögu og leyndardóma böskaranna fyrir Íslendingum. Nánari upplýsingar um námskeiðið má finna á síðunni www.skagastrond.is.
Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Arnór Sig kominn á fast Lífið Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Fleiri fréttir Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira