Múm notar hljóðnema úr skriðdrekahlutum 25. ágúst 2008 06:00 Gunnar og hljómsveitin Múm eru að leggja lokahönd á nýja plötu.
Tónlistarmaðurinn Gunnar Örn Tynes dvaldist í sumar í hinum afskekkta Galtarvita á Vestfjörðum, en vinnur nú að upptöku nýjustu plötu hljómsveitarinnar Múm - þar sem meðal annars er notast við hljóðnema úr skriðdrekahlutum. Tónlistarmaðurinn Gunnar Örn Tynes dvaldist í sumar um nokkurt skeið í hinum afskekkta Galtarvita á Vestfjörðum. Gunnar, sem er meðlimur í hljómsveitinni Múm, segist hafa farið að Galtarvita reglulega frá árinu 2001 til að vinna að tónlist og njóta lífsins. „Óli vinur minn keypti vitann fyrir átta árum síðan og hafði hugsað sér að nýta híbýlin sem stað þangað sem listamenn og aðrir geta komið og unnið að tónlist, við skriftir eða bara notið náttúrunnar. Umhverfið við vitann er ólýsanlegt og það er erfitt að lýsa þeirri stemningu sem þar er, maður er bara ótrúlega einn í heiminum og gjörsamlega tímalaus," segir Gunnar. Meðan á dvölinni stóð vann Gunnar að safnplötu sem á að vera til styrktar vitanum. „Ég var í vitanum í mánuð og bauð fullt af fólki að koma og vera með mér. Við unnum svo grunnvinnu að þessari styrktarplötu en kláruðum þau ekki því við ætlum að fá fleiri tónlistarmenn til að vinna með lögin. Hugmyndin er svo að gera þetta á tveggja ára fresti héðan í frá. Það er nefnilega ýmislegt sem þarf að laga og bæta og Óli hefur ekki endalaust fjármagn til þess." Gunnar er nú komin aftur suður til þess að klára nýjustu plötu hljómsveitarinnar Múm en við upptöku plötunnar notaðist hljómsveitin meðal annars við hljóðnema búinn til úr varahlutum úr gömlum skriðdrekum. „Ég var á tónleikaferðalagi og hitti þá manninn sem smíðar þessa hljóðnema úr varahlutum. Hljóðneminn lítur eiginlega út eins og lampi frekar en hljóðnemi og hljóðið sem kemur úr honum er gamalt, lítið hljóð með suði og er mjög fallegt. Smiðurinn varaði okkur þó við að ferðast mikið með hann því þessi málmblanda er helst notuð í hernaðarskyni og getur því komið manni í vandræði," segir Gunnar að lokum og minnir á að þeir sem hafi áhuga á að dvelja á Galtarvita geta haft samband við eigandann í gegnum galtarviti.com. sara@frettabladid.is
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Fleiri fréttir Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Madonna með heitustu dansmynd ársins Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum „Pólitíkusar sem tala á þennan veg: Fokk jú“ „Þú getur ekki ráðist að mér þegar ég er að borða með ömmu minni“ Peabo Bryson er látinn Datt af sviðinu og beint í skurð „Stundum verður maður að segja fokk it“ „Við skoðuðum þennan markað og hann var allur í lausu lofti“ Íslenskur tónlistararfur loksins aðgengilegur öllum Mugison þakkar innilega fyrir sig Segir gagnrýnina til marks um normalíseringu barnagirndar Snúa aftur á byrjunarreit: „Það þekkir enginn rassinn á mér eins vel og Addi“ Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Blóð, sviti og tár skemmtilegra en að prumpa út lögum Bó átti að syngja á nýju lagi Stefáns: „Örlögin gripu í taumana“ Stendur með Bríeti í deilunni við Pálma Þá var kátt í höllinni Shakira sýknuð Þrjú hundruð kórbörn frumflytja lag Herra Hnetusmjör fagnar fyrir fullri Laugardalshöll „Þetta var erfiðasta ár lífs míns“ Nennti ekki að meika það Stjörnufans hjá Birni á Edition Fjarsamband alltaf erfitt Eurovision fer fram í vikunni en hlustunartölur hríðfalla Tónleikum Yasiin Bey frestað með dags fyrirvara fram á haust Sjá meira