Fígúrur í landslagi 4. september 2008 04:00 Það er margt einkennilegt í íslenskri náttúru. Mynd/Ellert Grétarsson
Ljósmyndasýningin „Fés og fígúrur – kynjamyndir í íslenskri náttúru“ verður opnuð í ljósmyndasalnum Fótógrafí, Skólavörðustíg 4, á laugardag kl. 17. Á sýningunni eru yfir tuttugu myndir sem sýna hinar fjölbreyttustu kynjamyndir sem orðið hafa á vegi ljósmyndarans í gönguferðum hans í íslenskri náttúru: alls kyns kynjaverur, tröll, skessur og þursar, kynngimagnaðar forynjur og margvísleg furðufés. Ellert Grétarsson starfar sem ljósmyndari og blaðamaður hjá Víkurfréttum á Suðurnesjum. Hann á að baki fjölda einka- og samsýninga hér heima og erlendis og hefur unnið til alþjóðlegra verðlauna fyrir ljósmyndir sínar. Síðastliðið vor hlaut hann þrenn verðlaun fyrir náttúruljósmyndum í flokki atvinnumanna í alþjóðlegu PX3-ljósmyndakeppninni í París. Sýning Ellerts í Fótógrafí stendur yfir til 3. október.- vþ
Mest lesið Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Lífið Euphoria-stjörnur á Íslandi Lífið Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ Lífið Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Lífið Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Lífið Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Bíó og sjónvarp Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Lífið „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Lífið Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira