Keflavík lagði Hauka Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. október 2008 20:41 TaKesha Watson var stigahæst hjá Keflavík í kvöld. Mynd/E. Stefán
Keflavík er komið í úrslit í Powerade-bikarkeppni kvenna í körfubolta eftir tólf stiga sigur á Haukum í undanúrslitum. Haukar byrjuðu betur í leiknum og komust í 14-6 forystu en Keflvíkingar skoruðu næstu átta stig í leiknum og náðu að jafna metin áður en fyrsti leikhluti kláraðist. Staðan í leikhléi var svo 28-26, Keflvíkingum í vil. Keflvíkingar tóku svo öll völd í leiknum í þriðja leikhluta og komust í sautján stiga forystu, 57-40, fyrir fjórða og síðasta leikhlutann. Lokatölur voru 75-63, Keflvíkingum í vil. TaKesha Watson var stigahæst í liði Keflavíkur með nítján stig en Ingibjörg Vilbergsdóttir skoraði þrettán og Pálína Gunnlaugsdóttir tólf. Kristrún Sigurjónsdóttir skoraði 25 stig fyrir Hauka en þær Ragna Brynjarsdóttir og Slavica Dimovska voru með fjórtán hvor. Ragna tók þar að auki 20 fráköst. Fimm leikmenn komust á blað hjá Haukum í leiknum en níu hjá Keflavík. Nú klukkan 21.00 hefst hin undanúrslitaviðureignin í Laugardalshöllinni en þá eigast við KR og Grindavík.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Uppþot í Eyjum: „Í kvöld töpuðu íþróttirnar“ Handbolti Magnús Ver í 55. sæti á lista yfir bestu íþróttamenn sögunnar Sport Varamennirnir lögðu upp hvor fyrir annan Fótbolti Mamma reddaði treyjunum frá Thuram bræðrunum Sport Ódýr vítaspyrna tryggði tíu Madrídingum endurkomusigur Fótbolti Bitvargurinn fékk tólf leikja bann Sport Líktu varnarleik KR við varnarleik fimmtugs old boys liðs Íslenski boltinn Emil leggur skóna á hilluna Sport Hákon reyndist hetja Brentford Enski boltinn Fagnaði heimsmetinu í karíókí herbergi Sport Fleiri fréttir Uppþot í Eyjum: „Í kvöld töpuðu íþróttirnar“ Hundfúll út í Refina Arnór framlengir til 2028: „Vil sjá hversu langt við getum farið“ Guðjón Valur fagnaði sigri gegn meisturunum Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik „Þess vegna unnum við“ „Langt frá því að vera eins og við eigum að vera“ Andrea skoraði sjö í öruggum sigri ÍR og nýliðarnir á toppnum Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Haukar sóttu tvö stig norður Sneypuför Stjörnumanna til Eyja Viggó magnaður í dramatísku jafntefli Staðan grafalvarleg og HSÍ leitar nýrra leiða Uppgjör: Valur - FH 27-32 | Jón Þórarinn skellti í lás þegar FH sótti tvö stig á Hlíðarenda ÍR komið á blað þökk sé ótrúlegri frammistöðu Baldurs Fritz Fimm íslensk mörk í stórtapi Kolstad Janus Daði komst ekki á blað í naumu tapi Bognir en hvergi bangnir: „Ekki alltaf sólskin og sleikjóar“ Ómar Ingi fór áfram hamförum Engin vandamál hjá Arnari Birki og félögum Óðinn markahæstur á vellinum Rétthentu landsliðshornamennirnir í stuði Gamla merkið verður áfram á landsliðsbúningunum Birna Berg snýr aftur í landsliðið og tveir nýliðar Reif gjallarhornið úr höndum stuðningsmanns eftir fúkyrðaflaum Donni og félagar örugglega áfram í Evrópudeildinni Nýliðar KA/Þórs byrja með sigri Langþráð hjá Melsungen Viggó markahæstur í eins marks tapi Sjá meira