Ímyndarkrísan 11. apríl 2008 00:01 Það hlaut að koma að því. Ísland er ekki lengur svalasta land í heimi. Fremur leiðinleg tíðindi en þó ekki jafn leiðinleg og sú staðreynd að nú virðist flest benda til þess að svo hafi aldrei verið. Þetta var allt einhver bölvaður misskilningur. Skýrsla nefndar um ímynd Íslands hefur verið kynnt og niðurstöðurnar eru niðurdrepandi. Fólk er hreinlega farið að skammast sín fyrir að kenna sig við klakann. Ekki vegna þess að ímynd landsins sé slæm heldur vegna þess að hún er svo veik. Ísland er að mestu leyti óþekkt stærð úti í hinum stóra heimi. Hvað klikkaði? Björk, Jón Páll, lambakjötið og norðurljósin hafa ekki borið hróður okkar jafn víða og við héldum og áhyggjur okkar af því að lauslátt kvenfólk og hvalveiðar sköðuðu ímyndina voru úr lausu lofti gripnar. Það var engin ímynd til að skaða. Þetta er svo neyðarlegt að það nær ekki nokkurri átt. Ég er ekki frá því að það væri skárra ef í ljós hefði komið að ímynd Íslands væri skelfileg. Að fólk héldi að við værum lauslátir villimenn upp til hópa étandi heimaslátraða búrhvali í öll mál. Það hlýtur að vera skárra að fólk hafi ranghugmyndir um okkur en að það hafi nákvæmlega engar hugmyndir. Líklega getum við sjálfum okkur um kennt. Við erum eins og unglingur með brotna sjálfsmynd sem veit ekkert í hvorn fótinn hann á að stíga. Eigum við að skapa okkur ímynd út á óspillta náttúru, besta vatn í heimi og hreinasta loftið eða eigum við að sýna að við séum ekki rómantískir sveimhugar og gera stórfyrirtæki og þungaiðnað að helsta stolti okkar? Jafnvel nefndin sem fjallaði um þessi ímyndarmál virðist ekki vita hvort hún er að koma eða fara. Nefnir íslenska tungu sem eitt af sérkennum þjóðarinnar sem rétt sé að hlúa að um leið og hún kallar aðgerðaáætlunina til að lappa upp á ímynd þjóðarinnar Promote Iceland. Kraftur, frelsi og friður verða kjörorðin í markvissri ímyndarsköpun. Gott og vel. Það er tímabært að hvíla klisjurnar um fallegasta kvenfólk í heimi, skemmtanalífið í Reykjavík, hraunið, mosann og álfana. Einhvern veginn grunar mig samt að þess sé langt að bíða að ég rekist á útlending á erlendri grundu sem segir „ahh, ertu frá Íslandi?“ og kemur svo með ræðu um kraft þjóðarinnar, frelsi og frið. Ætli við þurfum ekki að sætta okkur við það í nokkur ár í viðbót að svara spurningum um lífið í snjóhúsunum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hveragerði klippt í sundur Arnar H. Halldórsson,Hjálmar Trausti Kristjánsson Skoðun Ósanngjörn reglugerð ógnar barnalækningum á Íslandi Helga Elídóttir Skoðun Áklæðið endurnýjað en vélin enn biluð Jóhanna Þorkelsdóttir Skoðun Nei eða já, af eða á Ásgeir Þorgeirsson Skoðun Ég: ritskoðaður? Júlíus Andri Þórðarson Skoðun Hvernig stenzt þetta skoðun, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skilvirkni og gagnsæi í málefnum flóttafólks Eva Rún Helgadóttir Skoðun Ráðherrar tala um farsæld barna – en láta Foreldrahús loka 1. maí Sædís Ósk Harðardóttir, Jóhanna Jóna Gunnlaugsdóttir,Halldóra Ingibergsdóttir Skoðun Fjársjóðurinn í matarkistunni Óli Finnsson Skoðun Viljum við að fatlað fólk komist um á eigin forsendum? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Harpa Cilia Ingólfdóttir Skoðun
Ráðherrar tala um farsæld barna – en láta Foreldrahús loka 1. maí Sædís Ósk Harðardóttir, Jóhanna Jóna Gunnlaugsdóttir,Halldóra Ingibergsdóttir Skoðun
Viljum við að fatlað fólk komist um á eigin forsendum? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Harpa Cilia Ingólfdóttir Skoðun
Ráðherrar tala um farsæld barna – en láta Foreldrahús loka 1. maí Sædís Ósk Harðardóttir, Jóhanna Jóna Gunnlaugsdóttir,Halldóra Ingibergsdóttir Skoðun
Viljum við að fatlað fólk komist um á eigin forsendum? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Harpa Cilia Ingólfdóttir Skoðun