Körfubolti

Mikil vinna framundan

Jón Arnar er bjartsýnn fyrir komandi átök í úrvalsdeildinni
Jón Arnar er bjartsýnn fyrir komandi átök í úrvalsdeildinni Mynd/Arnþór

Jón Arnar Ingvarsson segir að ÍR-lið hans örvænti ekki þrátt fyrir tvo skelli í röð gegn KR í haustmótunum. Hann segir þó að allt verði að ganga upp hjá liðinu í vetur ef það eigi að fylgja eftir prýðilegum árangri sínum síðasta vor.

ÍR kom skemmtilega á óvart í úrslitakeppninni síðasta vor þar sem það sló þáverandi meistara KR úr keppni í fyrstu umferð og stóð svo verulega uppi í hárinu á verðandi meisturum Keflavíkur.

Nokkrar breytingar urðu á hóp ÍR fyrir þessa leiktíð þar sem mestu munaði um að liðið missti leikstjórnandann Nate Brown í raðir Snæfells.

ÍR tapaði stórt fyrir KR í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins á dögunum og mátti þola annan skell fyrir vesturbæingum á heimavelli sínum í Powerade-bikarnum í gær.

"Við vorum auðvitað án okkar stigahæsta manns (Hreggviðs Magnússonar) í þessum leikjum gegn KR og erum með heldur slakari hóp en við höfðum í fyrra og það gerir þetta ekki auðveldara," sagði Jón í samtali við Vísi.

Hreggviður fór í speglun vegna hnémeiðsla á dögunum og vonast Jón til að hann verði orðinn heill þegar Iceland Express deildin fer af stað um miðjan mánuð. Hann mun að sögn Jóns koma hægt og rólega inn í leik liðsins eftir því sem heilsan leyfir.

Jón Arnar segist ekki örvænta þrátt fyrir töpin tvö, en telur víst að ÍR verði að hafa heppnina með sér ef vel á að ganga í vetur.

"Maður er aldrei sáttur að tapa leikjum en við förum ekkert að örvænta. Við spiluðum leiki við Val og Fjölni á undan og þar var ég þokkalega sáttur við margt hjá okkur. Markmiðið er auðvitað að vera samkeppnishæfur í þessu strax frá byrjun og ná liðinu fyrr í gang en í fyrra, en til að svo megi verða verðum við að hafa alla okkar menn klára. Það er mikil vinna framundan og ég hef enga ástæðu til annars en að ætla að við verðum samkeppnishæfir," sagði þjálfarinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×