Á ennþá 15 prósent 24. apríl 2008 00:01 Finnur Ingólfsson
Finnur Ingólfsson er enn stór hluthafi í Icelandair Group í gegnum félagið Langflug. Fréttir af sölu Finns á hlutum í félaginu í fyrrasumar, báru með sér að þá hefði Finnur sagt skilið við félagið. Þá seldi félag Finns FS7 tæplega 15,5 prósenta hlut sinn. Finnur staðfestir að hann eigi nú tvo þriðju hluta hlutafjár í Langflugi, á móti Fjárfestingafélaginu Gift, sem á þriðjung. Langflug er stærsti hluthafinn í Icelandair Group, með 23,8 prósenta hlut. Samkvæmt ársreikningi Langflugs fyrir árið 2006 átti Eignarhaldsfélagið Samvinnutryggingar, forveri Giftar, 75 prósenta hlut, en Finnur fjórðung prósenta. „Þetta var einhvern tímann á síðasta ári," segir Finnur, þegar hann er spurður um hvenær hann jók hlut sinn í Langflugi. Í lok desember sátu þrír menn í stjórn Langflugs. Finnur Ingólfsson, Helgi S. Guðmundsson og Ólafur Friðriksson. Finnur er nú stjórnarformaður Samvinnusjóðsins, sem líklega á þriðjungs hlut í Gift, og verður stærsti hluthafinn í Gift. Ólafur Friðriksson er fyrrverandi stjórnarformaður Giftar. Allir þrír hafa setið í svonefndu Fulltrúaráði eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga. Fulltrúaráðið velur sig sjálft en þar eru innan borðs ýmsir sem meðal annars tengjast Kaupfélögunum og Sambandi íslenskra samvinnufélaga. - ikh
Markaðir Mest lesið Heimsins fyrsti billjónamæringur Viðskipti erlent Enn fjölgar aflýsingum Viðskipti innlent Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Viðskipti innlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Viðskipti innlent Alvöru þægindi eftir átján holur Samstarf Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Atvinnulíf Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Samstarf Fleiri fréttir Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Sjá meira