Viðskipti innlent

Krónan aldrei veikari í lok dags

Evrur, líkt og flestir gjaldmiðlar að Bandaríkjadal undanskildum, hafa aldrei verið dýrari í krónum talið.
Evrur, líkt og flestir gjaldmiðlar að Bandaríkjadal undanskildum, hafa aldrei verið dýrari í krónum talið.
Gengi krónunnar veiktist um þrjú prósent og stendur gengisvísitalan í 202,7 stigum. Krónan hefur aldrei verið veikari í lok dags og nú. Vísitalan fór í 207 stig um hádegisbil. Bandaríkjadalur kostar nú 109,5 krónur, ein evra 153,8 krónur, eitt breskt pund 194,6 krónur og ein dönsk króna 20,6 krónur. Bandaríkjadalur snerti 112 krónur um hádegisbilið og hafði þá aldrei verið dýrari í krónum talið.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×