Endaði í súrrealískri martröð 4. september 2008 03:45 Brákaðist á Putta UMTBS sér ekki eftir því að hafa slegist í förm með Sirkus AgorA, þrátt fyrir hamfarir.
Ultra mega technobandið Stefán ferðast með Sirkusi AgorA, en eins og frést hefur féll ein sýningarstúlkan þeirra á mánudaginn. „Við vorum baksviðs þegar þetta gerðist.“ segir Sigurður Ásgeir Árnason, söngvari UMTBS. Hann segir þá ekki hafa vitað hvað gerðist fyrr en sjúkrabílarnir komu. „Mér fannst dálítið magnað að rétt eftir að hún var tekin út komu trúðarnir inn og héldu áfram að sýna. Eftir sýninguna fer ég að sirkustjóranum og spyr hvort þau ætli að sýna aftur í kvöld og hann segir já. Þetta sé bara venjulegt líf í sirkusnum. Við erum að upplifa einhvern skemmtanabransa sem er, liggur við, upp á líf og dauða,“ segir Sigurður. Fleira gekk á á sýningunni. „Trommuleikarinn okkar brákaðist á putta rétt á eftir þannig að við urðum að sleppa tveimur tónleikum á Sauðárkróki og í Borgarnesi. Eitthvað sem byrjaði sem eitthvert grín, einhver barnaskemmtun, endaði í súrrealískri martröð sem er það sem við erum að reyna að skapa á þessari plötu.“ Plata UMTBS, Circus, kom út í fyrsta september, en efni af plötunni var afhjúpað á forsíðu myspace fyrir skömmu. „Við höfum fengið heimsathygli tvisvar sinnum á tveimur mánuðum. Þannig að ég trúi ekki öðru en þrátt fyrir þessar hamfarir og slys sé bjartur vegur framundan,“ segir Sigurður. Bandið slæst aftur í för með sirkusnum í Keflavík í kvöld, en sýningar og tónleikar eru fyrirhuguð í Keflavík, 4. 5. og 6. september, í Smáralind 7. til 10. september og á Selfossi 11. september. Miðasala er á midi.is - kbs
Mest lesið Best að geta elt draumana saman Lífið Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Bíó og sjónvarp Guðni og gellurnar mættu í kokteilboð Lífið Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Laufey og Collab í eina sæng Lífið Er Rothschild-ættin að sölsa undir sig allan heiminn? Lífið Stjörnulífið: Hilmir Snær og Vala Kristín kósí í Laugum Lífið Ástrós Trausta og Adam kveðja Fossvoginn Lífið Minnast Davíðs: Hugrakkur, hnyttinn og stór í sniðum Lífið Björk glæsileg í indverskri hönnun Tíska og hönnun Fleiri fréttir Lagið minnti á sig í sambandsslitunum Einn vinsælasti íslenski tónlistarmaðurinn óþekktur hérlendis Laufey segir skilið við Wasserman í skugga Epstein-skandals Sturluð vika hjá Kristmundi Axel Úr barnaskemmtunum á klúbbinn Í fyrsta sinn á föstu á Valentínusardaginn 52 ára Sjóðandi hiti hjá stjörnum rappsins Segir bless og sjáumst aldrei við Wasserman Inspector Spacetime í Apple auglýsingu: „Mjög súrrealískt“ „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Sjá meira