Hagnaður Icelandair tekur dýfu 21. febrúar 2008 22:45 Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group. Mynd/GVA
Hagnaður Icelandair Group dróst verulega saman á milli ára í fyrra. Hagnaðurinn nam 257 milljónum króna á árinu samanborið við 2,6 milljarða í hitteðfyrra. Þá tapaði félagið 780 milljónum króna á fjórða ársfjórðungi samanborið 551 milljóna króna tap á sama tíma árið á undan. Í uppgjöri flugfélagsins kemur fram að heildartekjur ársins námu 63,5 milljónum króna, sem sé þrettán prósenta aukning á milli ára. Heildartekjur á fjórða ársfjórðungi einum saman námu 15,3 milljörðum sem er 3,3 milljarða króna aukning á milli ára. Þá nam rekstrarhagnaðurinn á árinu 5,5 milljörðum króna sem er sex hundruð milljónum krónum minna en í hitteðfyrra. Þar af nam rekstrarhagnaðurinn á fjórða ársfjórðungi 515 milljónum króna samanborið við 338 milljónir í hitteðfyrra. Eignir í lok ársins námu 66,8 milljörðum króna en þær voru 76,6 milljarðar króna í enda þarsíðasta árs. Eiginfjárhlutfall er 37 prósent í árslok sem er þriggja prósentustiga aukning á milli ára. Handbært fé frá rekstri árið 2007 var 3,9 milljarðar króna en var 6,4 milljarðar króna í hitteðfyrra. Haft er eftir Björgólfi Jóhannssyni, forstjóra félagsins sem tók við af Jóni Karli Ólafssyni í desember, að afkoman sé í samræmi við spánna sem kynnt var í nóvember. "Fyrirtækin innan samstæðunnar mynda sterka heild og undirstöður þess eru traustar og fjölþættar, en fjármagnskostnaður hækkaði verulega á árinu. Ljóst er að afkoma félagsins þarf að batna, efniviðurinn er til staðar, og ég er bjartsýnn á framhaldið," segir hann. Uppgjör Icelandair Group"
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira