Viðskipti innlent

Spron féll um 5,7 prósent í dag

Guðmundur Hauksson, forstjóri Spron.
Guðmundur Hauksson, forstjóri Spron.

Gengi bréfa í hinum færeyska Eik banka hækkaði um 5,68 prósent í dag auk þess sem háflug Icelandair Group hélt áfram en gengi bréfa í félaginu hækkaði um 2,4 prósent. Á sama tíma féll gengi bréfa í Spron um 5,7 prósent og í Existu um 3,3 prósent.

Bréf í Eimskipafélaginu, Straumi og Bakkavör hækkaði um tæpt prósent á sama tíma.

Bréf Össurar, Atlantic Airways og Færeyjabanka lækkuðu um rúmt prósent en önnur minna.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,7 prósent og stendur hún í 4.277 stigum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×