Sport

Ásdís nokkuð frá sínu besta

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ásdís Hjálmsdóttir.
Ásdís Hjálmsdóttir. Mynd/Anton

Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir varð í sjötta sæti á alþjóðlegu móti sem fram fór í Prag. Ásdís kastaði 57,30 metra.

Það er rúmlega fjórum metra styttra en Íslandsmet hennar. Sigurvegari mótsins var Barboa Spotakova frá Tékklandi sem kastaði 68,23 metra. Það er næstlengsta kast ársins.

Hlauparinn Björn Margeirsson tók þátt í 800 metra hlaupi í Gautaborg í gær. Hann hljóp á 1:51,29 mínútum og varð í níunda sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×