Viðskipti innlent

Eimskip rauk upp um tæp 55 prósent

Gengi hlutabréfa í Eimskipafélaginu rauk upp um 54,55 prósent í Kauphöllinni í dag. Aðeins tvö viðskipti standa á bak við hækkunina en gengi bréfa skipaflutningafélagsins standa nú í 85 aurum á hlut.

Þá hækkaði gengi bréfa Bakkavarar um 24,3 prósent í 29 viðskiptum.

Gengi bréfa í Straumi hækkaði um 6,58 prósent, í Marel Food Systems um 3,67 prósent, Össuri um 0,93 prósent og Atlantic Petroleum um 0,81 prósent.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) hækkaði um 1,45 prósent og endaði í 313 stigum en sú nýja (OMXI6), hækkaði um 3,12 prósent og endaði í 903,8 stigum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×