Innlent

Björn Bjarnason: Hefði aftekið þessa ráðstöfun fjár með öllu

Björn Bjarnason vissi ekki um FL Group styrkinn.
Björn Bjarnason vissi ekki um FL Group styrkinn.

„Ég vissi þetta ekki og hefði aftekið þessa ráðstöfun fjár með öllu hefði ég haft pata af henni og séð þetta rétt," segir Björn Bjarnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins spurður út í þrjátíu milljón króna fjárstyrk FL Group til Sjálfstæðisflokksins. Flokkurinn veitti styrknum viðtöku þann 29. desember árið 2006, aðeins tveimur dögum áður en lög um hámarkstyrki til stjórnmálaflokka tóku gildi.

Svo virðist sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafi ekki vitað af styrknum en fyrrum fjármálaráðherrann, Árni M. Mathíesen, segist enga hugmynd hafa haft um styrkinn til flokksins. Þeir heyrðu eingöngu um hann í fréttum Stöðvar 2.

Sigurður Líndal sagði í viðtali við Vísi fyrr í kvöld að það væri siðferðislega ámælisvert að taka við slíkum styrk. Að auki hlyti viðtaka styrksins að grafa undan trúverðugleika stjórnmálaflokks.

Ekki hefur náðst í framkvæmdastjóra Samfylkingarinnar, Sigrúnu Jónsdóttur, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir í kvöld, til þess að spyrja hvort Samfylkingin hefði þegið sambærilega styrki.




Tengdar fréttir

Stoðir: Upplýsingar ekki frá okkur komnar

„Þessar upplýsingar eru ekki frá okkur komnar. Ég hef enga vitneskju um þetta mál og get því hvorki staðfest það né neitað,“ segir Júlíus Þorfinnsson, talsmaður Stoða, um 30 milljóna króna styrk sem FL Group greiddi til Sjálfstæðisflokksins undir lok ársins 2006.

Sigurður Líndal: Siðferðislega ámælisvert að hagnýta sér lög

„Það er siðferðislega ámælisvert að hagnýta sér lög sem maður sjálfur átti þátt í að samþykkja, þó þau hafi ekki formlega tekið gildi," segir Sigurður Líndal, lagaprófessor við frétt Stöðvar 2 þar sem sagt var frá því að FL Group styrkti Sjálfstæðisflokkinn um 30 milljónir þann 29. desember 2006, aðeins þremur dögum áður en lög um hámarksstyrki til stjórnmálaflokka tóku gildi.

Árni M: Ég hafði enga hugmynd

„Ég hafði enga hugmynd. Ég heyrði þetta bara fyrst í fréttunum áðan," sagði fyrrum fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, Árni M. Mathíesen, spurður hvort hann hefði heyrt af risaháum styrk FL Group til Sjálfstæðisflokksins í lok desember árið 2006, aðeins þremur dögum áður en lögin tóku gildi um hámarksstyrk fyrirtækja til stjórnmálaflokka.

FL Group styrkti Sjálfstæðisflokk um þrjátíu milljónir

FL Group styrkti Sjálfstæðisflokkinn um þrjátíu milljónir króna aðeins nokkrum dögum áður en lögum var breytt um hámarksframlög til stjórnmálaflokka. Skattrannsóknarstjóri hefur reikning um þennan styrk meðal annars til rannsóknar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×