Sport

Þokkaleg byrjun hjá Tiger

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Tiger spilaði vel en var í vandræðum með púttin.
Tiger spilaði vel en var í vandræðum með púttin. Nordic Photos/Getty Images

Tiger Woods kláraði fyrsta hringinn á móti í Flórída á einu höggi undir pari. Hann er sex höggum á eftir efstu mönnum sem eru Phil Mickelson, Retief Goosen, Jeev Milkha Singh og Prayad Marksaeng.

Tiger fékk þrjá fugla á hringnum og tvo skolla. Hann lenti helst í vandræðum með púttin sín.

„Ég var orðinn svolítið pirraður á flötunum. Mér fannst ég slá mörg góð högg á flötunum en þau fóru bara ekki niður," sagði Tiger svekktur.

„Þetta voru alls ekki slæm pútt hjá mér. Ég var ekki í vandræðum á flötunum. Þá væri ég virkilega pirraður. Þetta voru fín pútt sem fóru bara ekki niður. Ég þarf að halda svona áfram og þá fara púttin niður."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×