Innlent

Sjálfstæðismenn fá frest fram yfir kosningar til að svara kæru VG

Magnús Már Guðmundsson skrifar
Jóhannes Gunnarsson, formaður siðanefndarinnar SÍA.
Jóhannes Gunnarsson, formaður siðanefndarinnar SÍA.
Sjálfstæðismenn í Norðvesturkjördæmi hafa frest fram yfir kosningar til að kom á framfæri sínum sjónarmiðum vegna kæru Vinstri grænna til siðanefndar SÍA, Sambands íslenskra auglýsingastofa. Þetta segir Jóhannes Gunnarsson, formaður siðanefndarinnar SÍA. Hann vill ekki tjá sig efnislega um kæruna.

Kæran er tilkomin vegna auglýsingar Sjálfstæðisflokksins sem birtust í héraðsblöðum í Norðvesturkjördæmi þar sem birt var mynd af Steingrími J. Sigfússyni, formanni Vinstri grænna, án hans vitneskju. Slíkt er bannað samkvæmt 8. grein siðaregla SÍA. Þar segir að ekki skuli sýna eða minnast á einstaklinga, hvort sem þeir starfa á eigin eða opinberu sviði, nema áður fengin heimild sé fyrir hendi.

Sjálfstæðiflokkurinn hefur frest til 28. apríl til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. „Nefndin er ekki búinn að koma saman en það liggur fyrir kæra frá Vinstri grænum og það er búið að óska eftir sjónarmiðum Sjálfstæðisflokksins. Þetta er eðlileg málsmeðferð og síðan mun nefndin funda og úrskurða í málinu á grundvelli siðareglna sem eru fyrir hendi," segir Jóhannes.

Jóhannes segir að siðanefndinni hafi ekki borist aðrar kærur að undanförnu önnur en kæra Vinstri grænna vegna auglýsingar Sjálfstæðisflokksins. „Það er eina málið sem er mér kunnugt um að hafa borist til siðanefndar enn sem komið er."

Morgunblaðið og Fréttablaðið birtu í dag auglýsingar frá Vefþjóðviljanum, andríki.is sem haldið er úti af hægrimönnum, þar sem birt er mynd af Steingrími og fullyrt að hann hafi hagnast um 15 milljónir á eftirlaunalögunum svokölluðu. Jóhannes hefur séð umræddar auglýsingar.


Tengdar fréttir

VG kærir sjálfstæðismenn fyrir siðanefnd SÍA

Vinstri hreyfingin grænt framboð hefur kært Sjálfstæðisflokkinn í Norðausturkjördæmi til siðanefndar SÍA, Sambands íslenskra auglýsingastofa, vegna meintra brota á siðareglum samtakanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×