Innlent

Varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins hneykslaður á styrk FL Group

Dögg Pálsdóttir, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Dögg Pálsdóttir, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Dögg Pálsdóttir, lögfræðingur og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, er hneyksluð á 30 milljón fjárstyrk sem Sjálfstæðisflokkurinn fékk í lok árs 2006.

Sagt var frá því í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi að FL Group hafi styrkt Sjálfstæðisflokkinn um þrjátíu milljónir króna aðeins nokkrum dögum áður en lögum var breytt um hámarksframlög til stjórnmálaflokka.

Dögg segir í pistli á heimasíðu sinni að Andri Óttarsson, framkvæmdastjóri flokksins, hljóti að tjá sig um málið. Jafnvel þótt lög um fjármál stjórnmálaflokka hafi ekki verið í gildi á þessum tíma.

Þá segir Dögg að tímasetning þessara „upplýsinga" sé engin tilviljun. Þeim sé komið á framfæri til að koma hámarkshöggi á Sjálfstæðisflokkinn.


Tengdar fréttir

Sigurður Líndal: Siðferðislega ámælisvert að hagnýta sér lög

„Það er siðferðislega ámælisvert að hagnýta sér lög sem maður sjálfur átti þátt í að samþykkja, þó þau hafi ekki formlega tekið gildi," segir Sigurður Líndal, lagaprófessor við frétt Stöðvar 2 þar sem sagt var frá því að FL Group styrkti Sjálfstæðisflokkinn um 30 milljónir þann 29. desember 2006, aðeins þremur dögum áður en lög um hámarksstyrki til stjórnmálaflokka tóku gildi.

Árni M: Ég hafði enga hugmynd

„Ég hafði enga hugmynd. Ég heyrði þetta bara fyrst í fréttunum áðan," sagði fyrrum fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, Árni M. Mathíesen, spurður hvort hann hefði heyrt af risaháum styrk FL Group til Sjálfstæðisflokksins í lok desember árið 2006, aðeins þremur dögum áður en lögin tóku gildi um hámarksstyrk fyrirtækja til stjórnmálaflokka.

VG með allt uppi á borði

Drífa Snædal, framkvæmdastýra Vinstri Grænna, segir að flokkurinn hafi ávallt haft bókhald sitt opið. Hægt sé að nálgast endurskoðaða reikninga flokksins á heimasíðu hans aftur til ársins 2003. Reikningar flokksins hafi verið birtir frá því löngu áður en lög um að flokkarnir opni bókhald sitt tóku gildi árið 2007. Upplýst hafi verið um öll framlög umfram hálfa milljón króna.

Björn Bjarnason: Hefði aftekið þessa ráðstöfun fjár með öllu

„Ég vissi þetta ekki og hefði aftekið þessa ráðstöfun fjár með öllu hefði ég haft pata af henni og séð þetta rétt," segir Björn Bjarnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins spurður út í þrjátíu milljón króna fjárstyrk FL Group til Sjálfstæðisflokksins. Flokkurinn veitti styrknum viðtöku þann 29. desember árið 2006, aðeins tveimur dögum áður en lög um hámarkstyrki til stjórnmálaflokka tóku gildi.

Samfylkingin ber við trúnaði og neitar að gefa upp helstu styrktaraðila

Framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar neitar að gefa upp hverjir voru helstu styrktaraðilar flokksins á árinu 2006. Sýna þurfi styrkjendum trúnað. Framlag FL Group til Sjálfstæðisflokksins undir lok þess árs, nam ríflega helmingi af samanlögðum framlögum lögaðila til flokksins árið eftir.

Aldrei heyrt um neitt í líkingu við FL-styrkinn

Þorgeir Baldursson fyrrverandi formaður fjármálaráðs Sjálfstæðisflokksins segist aldrei hafa heyrt um styrk sem sé eitthvað í líkingu við þær 30 milljónir króna sem flokkurinn fékk frá FL-Group árið 2006. Þorgeir segist hafa verið hættur þegar umræddur styrkur barst. Vilhjálmur Egilsson núverandi formaður fjármálaráðs segist hafa byrjað eftir að styrkurinn var veittur. Hvorugur þeirra segist vita hver gegndi stöðunni í millitíðinni en fjármálaráð sér um að afla styrkja fyrir flokkinn.

FL Group styrkti ekki Sjálfstæðisflokkinn ári eftir risastyrk

FL Group styrkti ekki Sjálfstæðisflokkinn árið 2007. Fram kom í fréttum okkar í gærkvöld að félagið lagði þrjátíu milljónir inn á reikning flokksins í lok árs 2006. Frjálsyndi flokkurinn fékk heldur ekki styrk frá FL Group árið 2007.

FL Group styrkti Sjálfstæðisflokk um þrjátíu milljónir

FL Group styrkti Sjálfstæðisflokkinn um þrjátíu milljónir króna aðeins nokkrum dögum áður en lögum var breytt um hámarksframlög til stjórnmálaflokka. Skattrannsóknarstjóri hefur reikning um þennan styrk meðal annars til rannsóknar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×