Halló Tortóla, hér kem ég! Dr. Gunni skrifar 2. apríl 2009 06:00 Ég er að spá í að skella mér í sólina á Tortóla um páskana. Ég hef heyrt svo margt fallegt um þessa hitabeltisparadís. Eyjan er 55.7 ferkílómetrar að stærð, rúmlega fjórum sinnum stærri en Heimaey. Þarna búa um 24 þúsund manns, aðalbærinn heitir Road Town með um tíu þúsund hræðum. Tortóla er stærsta eyja Bresku Jómfrúreyjanna. Samtals er búið á fimmtán þeirra svo kannski maður skryppi í siglingu til næstu eyja. Samt ekki til Necker eyju sem Richard Branson á. Hann yrði örugglega brjálaður ef maður mætti bara óboðinn. Samt gæti maður kannski röflað sig út úr því. Logið að maður væri aðdáandi Tubular Bells og svona. Eins og gefur að skilja er þetta nokkuð ferðalag. Þrjú flug. Fyrst til New York, þaðan til Púertó Ríkó, sem er næsta verulega stóra eyja, og svo loks til Beef-eyju þar sem flugvöllurinn er. Beef-eyja er tengd við Tortólu með Queen Elízabet II brúnni. Flugið frá Íslandi tekur hálfan sólarhring og maður væri mættur ferskur í sólina á skírdagsmorgun. Kostar ekki nema rúmlega hundrað þúsund kall báðar leiðir. Það er auðvitað gullfallegt þarna. Allt vaðandi í ljósbrúnum sandströndum, sól og pálmatrjám. Allt fljótandi í áfengi. Bjór, sætum kokteilum en þó aðallega rommi. Maður myndi ekki skorast undan í þeim efnum. Byrjaði kannski á Le Cabanon barnum, eða „The Cab" eins og innfæddir kalla pleisið, þaðan á Bomba Shack og endaði auðvitað í Leðurblökuhellinum, The Bat Cave, sem eins og allir vita er heitasti næturklúbburinn á Tortólu. Það er fullt hægt að dedúa á Tortólu. Maður tæki þynnkuna úr sér með heimsókn í Callwood rommverksmiðjuna. Hæsta fjallið á öllum Jómfrúreyjum er þarna, heitir Sage og er 530 metra hátt. Margar gönguleiðir upp á topp. Dolphin Discovery fyrirtækið er með eitt af sjö útibúum sínum þarna. Það starfrækir aðstöðu til að gera fólki kleift að synda með höfrungum. Margir vilja meina að það sé alveg meiriháttar. Ég léti auðvitað reyna á það. Svo kíkti maður á skrifstofuna hjá Opal Global. Það er alltaf gaman að hitta landa sína í útlöndum, sérstaklega duglega menn sem hafa notað íslenskt skattfé til að styrkja innviði glæsilegra partíeyja. Svo bara aftur á „The Cab" í meira stuð. Skál! Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Dr. Gunni Mest lesið Þjóðin vill eitt, Kristrún annað Ole Anton Bieltvedt Skoðun Hversu lítill fiskur yrðum við? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ferðaþjónustan er burðarás í íslensku efnahagslífi Þórir Garðarsson Skoðun Söngur Ísraels og RÚV Ingólfur Gíslason. Skoðun Lélegir íslenskir læknar...eru ekki til! Steinunn Þórðardóttir Skoðun Þjóðin sem selur sjálfri sér: Vangaveltur um sölu Íslandsbanka Guðjón Heiðar Pálsson Skoðun Ófullnægjandi vinnubrögð ófaglærðra „iðnaðarmanna“: Áhrif á húskaupendur Kristinn R Guðlaugsson Skoðun Halldór 17.05.2025 Halldór Valkyrjurnar verða að losa okkur við Rapyd Björn B. Björnsson Skoðun Uppiskroppa með umræðuefni í málþófi? Talið um Gaza! Viðar Eggertsson Skoðun
Ófullnægjandi vinnubrögð ófaglærðra „iðnaðarmanna“: Áhrif á húskaupendur Kristinn R Guðlaugsson Skoðun
Ófullnægjandi vinnubrögð ófaglærðra „iðnaðarmanna“: Áhrif á húskaupendur Kristinn R Guðlaugsson Skoðun