Grunaðir um framleiðslu á marijúana og amfetamíni 23. október 2010 06:00 marijúana Mennirnir eru grunaðir um að hafa framleitt marijúana.
Karlmennirnir fjórir, sem handteknir voru í fyrradag vegna rannsóknar lögreglu á framleiðslu fíkniefna, eru grunaðir um að hafa bæði framleitt amfetamín og marijúana. Einn mannanna hefur áður komið við sögu hjá lögreglu hér vegna fíkniefnamáls. Mennirnir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 4. nóvember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þeir eru allir litháískir ríkisborgarar á þrítugs- og fertugsaldri. Þeir voru handteknir í Reykjavík og Grímsnesi í fyrradag. Rannsókn lögreglu snýr að ætlaðri framleiðslu fíkniefna, sölu þeirra og dreifingu. Við húsleitir var lagt hald á amfetamín og kókaín og mun magn hvorrar tegundar hafa verið undir kílói. Þá fundust um tvö kíló af marijúana, sem grunur leikur á að mennirnir hafi framleitt. Loks fann lögregla um sex milljónir króna í reiðufé sem er álitið að sé afrakstur fíkniefnasölu. Lögregla tók einnig í sína vörslu ýmis önnur verðmæti sem grunur leikur á að séu, minnsta kosti að hluta, þýfi, svo og tæki sem talin eru tengjast framleiðslu á amfetamíni og marijúana.- jss
Fréttir Innlent Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira