Segir rangt að ráðuneyti neiti vinnu 2. desember 2010 05:15
Upplýsingafulltrúi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins segir alrangt að ráðuneytið hafi neitað að vinna að aðildarviðræðum stjórnvalda við ESB. Það er í mótsögn við ummæli formanns Bændasamtakanna. Í Fréttablaðinu var nýlega haft eftir formanni samninganefndar Íslands að samtökin hefðu ekki viljað sitja fund um landbúnaðarmál sem fór fram í Brussel og það hefði veikt stöðu nefndarinnar. Í blaðinu á þriðjudag vísaði Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtakanna, því hins vegar á bug og sagði samtökin hafa tekið að sér verk í tengslum við aðildarviðræðurnar, sem hefði í raun átt að vera á könnu ráðuneytisins. „Ráðuneytið neitar allri vinnu en ber raunverulega ábyrgð á að fylgja eftir hagsmunum atvinnuvegarins, ekki við,“ sagði hann. Bjarni Harðarson, upplýsingafulltrúi ráðuneytisins, sagði í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins að ráðuneytið hefði ekki „neitað allri vinnu“ eins og Haraldur sagði. „Nei, það er alrangt og ég hef ekki trú á að talsmaður bænda hafi haldið því fram í viðtali við blaðið. Vinna ráðuneytisins að þessum málum liggur meðal annars í margs konar rýnivinnu og fundahöldum með innlendum og erlendum aðilum.“ - þj
Fréttir Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Fleiri fréttir Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Sjá meira