Líðan mannsins orðin stöðug 19. júní 2010 04:00 írabakki ferðataska úr íbúðinni brennur á meðan slökkvilið ræður niðurlögum eldsins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Maður sem fluttur var á slysadeild að kvöldi 17. júní eftir að eldur kom upp í íbúð hans við Írabakka, er kominn á almenna deild. Hann dvaldi á gjörgæslu fyrstu nóttina vegna gruns um reykeitrun, en líðan hans er nú stöðug. Manninum var bjargað af þremur mönnum úr nærliggjandi íbúðum sem náðu honum út á svalir hússins. Þaðan var hann svo fjarlægður af slökkviliðsmönnum. Eldurinn átti upptök sín í eldhúsi á jarðhæð og komst í plast sem fyrir var í íbúðinni. Þetta gerði það að verkum að mikill og svartur reykur fyllti bæði íbúðina og stigagang hússins. Að minnsta kosti sex manns festust á efstu hæðum og þurfti fjóra reyk-kafara til að bjarga fólkinu út. Að sögn Óla Ragnars Gunnarssonar, varðstjóra slökkviliðsins, var eldurinn ekki mikill þrátt fyrir mikinn reyk og slökkvistarf gekk hratt og vel fyrir sig. Tvær deildir slökkviliðsins komu að málinu og að auki voru þrír sjúkrabílar á staðnum til að huga að íbúum sem nokkrir voru fluttir á slysadeild þegar björgunarstarfi var lokið. - sv
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég get horft í augun á ykkur“ Innlent Foreldrar sextíu barna vilji leikskólastjórann burt Innlent Hrikalega spenntur að spreyta sig á nýjum vettvangi Innlent Ellert B. Schram er fallinn frá Innlent Grjóthörð sparnaðarráð til Kristrúnar með ástarkveðju frá FA Innlent „Það á auðvitað að fara að lögum“ Innlent Fimm ára leyfi frá borginni til að fara á þing Innlent Maðurinn hafi talið sig vera að fara að hitta stúlku á fermingaraldri Innlent Fjórir fluttir með þyrlu eftir árekstur Innlent Sautján ára máli Amöndu Knox lýkur með sakfellingu Erlent Fleiri fréttir „Nemendur með þroskahömlun geta svo sannarlega komist inn í Listaháskólann“ Íhugar formannsframboð Lögðu fram tilboð sem var ekki svarað Fjórir fluttir með þyrlu eftir árekstur Guðrún íhugar framboð og Guinness-æði skekur íslenska djammið Lýsa yfir miklum vonbrigðum með stöðu viðræðna „Ég get horft í augun á ykkur“ Eldur í bíl í Strýtuseli Valt inn á byggingarsvæði eftir árekstur við strætó Anna, Anna og Sveinbjörn aðstoða ríkisstjórnina Hrikalega spenntur að spreyta sig á nýjum vettvangi Ellert B. Schram er fallinn frá „Það á auðvitað að fara að lögum“ Segir borgina hafa unnið að lausn mála hjá Maríuborg um nokkurt skeið Maðurinn hafi talið sig vera að fara að hitta stúlku á fermingaraldri Boða til allsherjarfundar samninganefnda Kennarasambandsins Lögregla rannsakar tálbeituaðgerð ungmenna Grjóthörð sparnaðarráð til Kristrúnar með ástarkveðju frá FA Lenti í kófi og ók í veg fyrir tvo vörubíla Óttast að íbúar utan Reykjavíkur festist í gistiskýlunum Fimm ára leyfi frá borginni til að fara á þing Foreldrar sextíu barna vilji leikskólastjórann burt Farinn af vettvangi en fannst með áverka stuttu síðar Hús varð fyrir tjóni vegna eldingar Viss um sigurinn en óviss um að komast inn á landsfundinn „Við erum algjörlega komin á endastöð“ „Enn einn áfellisdómurinn yfir stjórnsýslu borgarinnar“ Staðfestir niðurfellingu rannsóknar á blaðamönnunum Áfellisdómur á stjórnsýslu borgarinnar og meintur fjárdráttur Að minnsta kosti þrettán milljónir og „einbeittur brotavilji“ Sjá meira