Íslenski boltinn

Dramatískur Fjölnissigur í fyrsta leik Örvars

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Úr leiknum í kvöld.
Úr leiknum í kvöld. Mynd/Vilhelm
Fjölnir vann 81-80 sigur á Hamar í Iceland Express deild karla í kvöld. Fjölnismenn lentu 16 stigum undir í byrjun leiksins en komu sér inn í leikinn og tryggðu sér dramatískan sigur í lokin.

Hetja Fjölnis var Tómas Heiðar Tómasson á báðum endum vallarsins, hann skoraði bæði sigurkörfuna og varði lokaskot Hamarsmanna.

Hamarsmenn fóru á kostum í fyrsta leikhluta og þá sérstaklega þeir Andre Dabney og Darri Hilmarsson sem skoruðu sitthvor tíu stigin. Hamar var fyrir vikið sextán stigum yfir, 34-18, eftir fyrstu tíu mínúturnar.

Það var betra að sjá til Fjölnismanna í öðrum leikhluta og munurinn var kominn niður í ellefu stig í hálfleik, 41-52.

Fjölnismenn héldu áfram að vinna upp forskotið í þriðja leikhluta þar sem þeir náðu muninum niður í fjögur stig (62-66) en munurinn var fimm stig, 64-69, fyrir lokaleikhlutann.

Fjölnismenn skoruðu fyrstu þrjú stig fjórða leikhlutans og leikurinn var æsispennandi allan lokaleikhlutann. Hamarsliðið var þó skrefinu á undan þar til að Jón Sverrisson kom Fjölni yfir í 76-75 með þriggja stiga körfu þegar 3 mínútur voru eftir.

Andre Dabney svaraði með þrist og kom Hamar aftur yfir í 78-76 og í kjölfarið var mikill darraðadans á vellinum þar sem liðið skiptust á að ná forustunni.

Það var síðan Tómas Heiðar Tómasson sem tryggði Fjölni sigurinn í lokin, fyrst með því að koma Fjölni í 81-80 og svo með því að verja lokaskot leiksins frá Andre Dabney.

Ben Stywall skoraði 22 stig og tók 10 fráköst fyrir Fjölni, Ægir Þór Steinarsson var með 19 stig, 9 fráköst og 7 stoðsendingar og Tómas Heiðar Tómasson skoraði 15 stig.

Andre Dabney skoraði 29 stig fyrir Hamar og Darri Hilmarsson var með 22 stig.

Fjölnir-Hamar 81-80 (18-34, 23-18, 23-17, 17-11)

Fjölnir: Ben Stywall 22/10 fráköst, Ægir Þór Steinarsson 19/9 fráköst/7 stoðsendingar, Tómas Heiðar Tómasson 15, Elvar Sigurðsson 8, Arnþór Freyr Guðmundsson 4, Hjalti Vilhjálmsson 4/4 fráköst, Ingvaldur Magni Hafsteinsson 4, Jón Sverrisson 3, Sindri Kárason 2.

Hamar: Andre Dabney 29/6 fráköst/5 stoðsendingar, Darri Hilmarsson 22/6 fráköst, Ellert Arnarson 10, Nerijus Taraskus 8/4 fráköst, Ragnar Á. Nathanaelsson 6/9 fráköst, Svavar Páll Pálsson 5/4 fráköst.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×