Rændi 10-11 með hulið andlit 29. desember 2010 04:00 Verslun 10-11 Maðurinn rændi 10-11 í Hafnarfirði í gærmorgun. Mynd/úr safni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitaði í gær manns sem rændi 10-11 verslun á Melabraut í Hafnarfirði í gærmorgun. Það var rétt fyrir klukkan átta í gærmorgun sem maður kom inn í verslunina. Hann var með klút fyrir andlitinu og krafðist þess að fá peninga og sígarettur. Hann hafði uppi hótanir um að beita vopni yrði afgreiðslumaðurinn ekki við kröfum sínum. Ræninginn hafði einhverja fjármuni og nokkuð af sígarettum upp úr krafsinu. Mynd af honum náðist á öryggismyndavél í versluninni og rannsakaði lögregla málið í gær. Einn karlmaður var við afgreiðslu í versluninni og vann ræninginn honum ekki mein. Auk þessa leitar lögreglan á höfuðborgarsvæðinu enn innbrotsþjófa sem látið hafa til sín taka í Hafnarfirði og Garðabæ frá því í nóvember. Þrjú innbrot voru framin á svæðinu um jólin og náðist einn maður. Hann er ekki talinn tengjast þeim sem hafa flest brotin á samviskunni, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Lögregla beinir því til fólks að fylgjast með grunsamlegum mannaferðum og láta vita ef um slíkt er að ræða.- jss
Fréttir Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Fleiri fréttir Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið Sjá meira